# radpar, Hjallabraut 45, Hafnarfjörður

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/04af6342-0002-4967-b4e2-8aef623e91c1

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** active
- **Transaction:** sale
- **Category:** house
- **Asking price:** 169,000,000 ISK
- **Location:** Hafnarfjörður, IS
- **Floor area:** 158.3 m²
- **Bedrooms:** 3
- **Published:** 2026-10-08T11:55:35.291Z
- **Last updated:** 2026-10-10T00:51:50.093Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Fasteignasalan TORG og Sigríður Rut, lgfs. í gsm.699-4610 kynna: Glæsilegt nýbyggt endaraðhús á tveimur hæðum að Hjallabraut 45-49 í Hafnarfirði og skilast með innréttingum og tækjum samkvæmt skilalýsingu. Sjá nánari inná Heimasíðu og myndband fyrir Hjallabraut 45-47
Verið er að byggja 7 raðhús á tveimur hæðum og 3 einbýlishús. Frábær staðsetning í rótgrónu hverfi miðsvæðis í Hafnarfirði, við norðvestur jaðar Víðistaðatúns sem er vinsælt og fjölskylduvænt svæði með fjölbreyttum möguleikum til útivistar.
Húsin eru einstaklega vönduð með
Free@Home hússtjórnunarkerfi
Loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu
Forhitarakerfi
Vandaðar innréttingar og eldhústæki
Mjög stór verönd og svalir
Gott útsýni.
Stærðir: 157,5 - 159,7 fm
Herbergi: 4ra herbergja (3 svefnh.)
Tvö baðherbergi og ein gestasnyrting

Afhending: Raðhús 45,45A og 45 B í apríl 2025 og Raðhús nr. 47-47A, 47B OG 47C
- Innréttingar frá Brúnás, sýnilegir fletir á innréttingum verða úr Gladstone melamin efni og að innan úr ljósgráum spónaplötum.
- Borðplötur í eldhúsi verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni.
- Eldhústæki: Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja helluborð með viftu, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti og innbyggður kæliskápur. Raftæki sem fylgja eldhúsi koma frá Bræðrunum Ormsson.
-Gólfhitakerfið fylgir frágengið og verður stjórnað af hitanemum í rofadósum sem er hluti af Free@home hússtjórnunarkerfinu
- Sjá nánar um skil í skilalýsingu seljanda.
Byggingaraðili er traustur verktaki til fjölda ára: Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 699-4610, tölvupóstur eða Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á 

Hjallabraut 45-47(raðhús) SKILALÝSING 17.02.2025
1. Frágangur innanhúss
1.1. Gólfefni
Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar frá Flísabúðinni.
1.2. Veggir
Útveggir íbúðarinnar eru einangraðir að innan, múraðir og sandsparslaðir. Sjónsteypu innveggir eru meðhöndlaðir með einni umferð að sílan. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af hvítri akrílmálningu, gljástig 5 eða sambærilegt.
1.3. Loft
Steypt loft eru slípuð og slétt sandspörsluð. Loft eru grunnuð með tveimur yfirferðum af hvítri plastmálningu, gljástig 2% eða sambærilegt. Í þvottahúsi eru loft niðurtekin og klædd rakavarnar gipsplötum. Á baðherbergjum og í þvottahúsum eru loft máluð með viðurkenndri votrýmis málningu. Á völdum stöðum á annarri hæð íbúðarinnar er hluti lofta niðurtekinn og klædd hljóðdúk.
1.4. Gler
Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum BYKO glerframleiðanda. Við kaup íbúðar yfirtekur/taka kaupandi/kaupendur ábyrgð framleiðanda.
1.5. Stigi
Stigi á milli hæða er svartur stálstigi smíðaður af Stál og Suðu. Í þrepum eru skúffur sem á eftir að setja gólfefni í, kaupandi sér um það sjálfur.
1.6. Hurðir
Inngangshurðir inn í íbúðina koma frá Byko og fylgja frágengnar. Innihurðir koma frá Birgisson, þær verða yfirfelldar og svartlakkaðar.
1.7. Fataskápar
Fataskápar eru í forstofu og svefnherbergjum. Innréttingar verða frá Brúnas, sýnilegir fletir á innréttingu verða úr Gladstone melamin efni og að innan úr ljósgráum spónaplötum.
1.8. Eldhús
Eldhúsinnrétting verður frá Brúnás. Sýnilegir fletir á innréttingu verða úr Gladstone melamin efni og að innan úr ljósgráum spónaplötum. Borðplötur í eldhúsi verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni. Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja helluborð með viftu, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti og innbyggður kæliskápur. Raftæki sem fylgja eldhúsi koma frá Bræðrunum Ormsson.
1.9. Baðherbergi
Á baðherbergjum er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft eða spartslaðir og málaðir eftir því sem við á. Sýnilegir fletir á innréttingu eru úr Gladstone melamin efni og að innan úr ljósgráum spónaplötum, innrétting verður frá Brúnás. Borðplötur í baðherbergjum verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni. Á baðherbergi verða ýmist speglaskápar eða speglar eftir því sem við á. Undirlímd handlaug ásamt einnar handar blöndunartæki verður í innréttingu eftir því sem við á frá Tengi. Handklæðaofn þar sem við á, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni. Innbyggt blöndunartæki verður í sturtu frá Tengi.
1.10. Þvottahús
Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás úr ljósgráum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki í borði. Í þvottahúsi er borðplata harðplastlögð með plastkanti. Niðurfall er í gólfi, og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara. Veggir eru grunnaðir og málaðir með hvítri viðurkenndri votrýmismálningu.
1.11. Geymsla
Loft eru slípuð og slétt sandspörsluð. Veggir eru múraðir og sandsparslaðir. Veggir og Loft eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af hvítri akrílmálningu. Gólf í geymslu verða lögð með epoxy.
1.12. Hitakerfi
Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita skv. teikningum. Gólfhitakerfið fylgir frágengið og verður stjórnað af hitanemum í rofadósum sem er hluti af Free@home hússtjórnunarkerfinu
1.13. Loftræsi-,vatns-ogþrifalagnir
Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni. Í hverri íbúð er loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu, þessu kerfi er skilað fullfrágengið.
1.14. Rafmagns-ogsjónvarpslagnir
Rafmagnslagnir fylgja frágengnar með einum mynddyrasíma í hverri íbúð. Tölvutengill verður í alrými og einnig í herbergjum. Ljósleiðari verður í húsinu. Innfelld dimmanleg lýsing fylgir frágengin í alrými skv. teikning. Free@Home hússtjórnunar frá Rafport kerfi fylgir húsinu.
2. Frágangurutanhúss
2.1. Klæðning og einangrun
Útveggir eru einangraðir með plasteinangrun að innanverðu. Að utanverðu eru veggir múrfiltaðir, grunnaðir og málaðir tveimur umferðum af útimálningu. Sjónsteypu veggir eru meðhöndlaðir með einni umferð af sílan. Sprungur geta myndast á yfirborði múrfiltunar sem verða ekki meðhöndlaðar frekar.
2.2. Steypt þak
Þakplata er steypt með vatnshalla að niðurföllum. Ofaná steypta plötu kemur tvöfalt lag af eldsoðnum
tjörupappa. Einangrun er 200 mm rakaþolin þrýstieinangrun. Ofaná einangrun kemur vatnsvarnardúkur
með öndun, einangrun er fergt með tvöföldu lagi af torfi. Niðurföll eru tengd regnvatnslögnum.
Þak yfir bílskýli er steypt með vatnshalla að niðurföllum. Ofaná steypta plötu kemur tvöfalt lag af
eldsoðnum tjörupappa.
2.3. Svalir
Svalagólf eru steypt og lögð fljótandi flísum frá Álfaborg. Svalaloft eru slípuð, grunnuð og máluð.
Stigi niður af svölum fylgir ekki. kaupendur hafa þann möguleika á að setja stiga sjálfir á sinn kostnað.
2.4. Gluggar
Gluggar eru álklæddir timburgluggar frá Byko. Opnanleg gluggafög fylgja frágengin, svo og allar úti- og svalahurðir að fullu frágengnar með þéttiköntum.
2.5. Lóð
Lóð verður fullfrágenginn samkvæmt leiðbeinandi teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í bílastæði og gangstíg framan við húsið samkvæmt teikningu. Í bakgarði verður timburklæddur pallur.
Einbýlishúsin og raðhúsin deila sameiginlegri lóð, og verður stofnað húsfélag sem sér um rekstur hennar.
3. Handbókhússins
Útbúinn verður sérstök handbók vegna hússins þar sem fram koma helstu upplýsingar um söluaðila efnis sem notað er í húsinu ásamt skýringum á helsta búnaði. Upplýsingar eru oft sóttar á heimsíður hinna ýmsu aðila og geta því slæðst með smávægilegar villur varðandi tæki og búnað þeirra og ber byggingarfélagið ekki ábyrgð á þeim.
Hönnuðir
Arkitektar: Bjarni Snæbjörnsson, bj.snæ arkitektar. Verkfræðihönnun: Vektor Verkfræðistofa Raflagnahönnun: Sigurður Ívar, Tesla. Lóðahönnun: Inga Rut Gylfadóttir, Landslag ehf.
Teikningar
Í kaupsamningi kemur fram hvaða teikningar arkitekts eru í gildi á þeim tíma þegar kaupsamningur er gerður. Á byggingartíma hússins áskilur byggingarfélagið sér rétt til að breyta þessum teikningum í samráði við arkitekt vegna tæknilegra útfærslna sem upp geta komið upp á meðan framkvæmd stendur. Teikningar annarra hönnuða geta líka breyst vegna tæknilegra útfærslna og/eða breytinga vegna búnaðar sem síðar er valinn inn í eða utan á húsið.
6. Byggingaraðili
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf., www.bygg.is Verkefnastjóri Bygg: Hafþór Hilmarsson, 
Frekari upplýsingar um efnisval og annað má nálgast hjá verkefnastjóra Byggingarfélagsins.
7. Áætlaðurafhendingartími
Áætlað er að húsin að Hjallabraut verði afhentar á tímabilinu júlí-ágúst 2025.
Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda geta haft áhrif á afhendingartíma til seinkunnar.
Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda hefur áhrif á afhendingartíma til seinkunnar. Allar breytingar sem kaupendur hafa hug á að gera þarf að gera í samráði við verkefnastjóra skriflega og mun hann meta hvort þær séu framkvæmanlegar. Íbúðareigandi er sjálfur ábyrgur fyrir því að bæði viðkomandi söluaðilar efnis ásamt verkefnastjóra byggingarfélagsins séu upplýstir um allar breytingar með pósti ekki með smáskilaboðum. Íbúðareigandi er sjálfur ábyrgur vegna viðbótarkostnaðar sem getur myndast hjá byggingarfélaginu vegna þessara breytinga. Byggingarfélagið tekur ekki á sig ábyrgð vegna skemmda sem kunna að verða á búnaði eða efnum sem íbúðareigandi hefur sjálfur sett inn í íbúðina áður en formleg afhending hefur farið fram.
8. Tiláréttingar
 Seljandi áskilur sér rétt til að láta breyta teikningum á byggingartímanum í samráði við arkitekta og hönnuði að fengnu samþykki byggingaryfirvalda sé þess þörf vegna tæknilegra útfærslna.
 Í nýjum íbúðum er mikill byggingaraki í steypuvirkinu. Þessi raki mun hverfa á einu til tveimur árum en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri. Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt gluggann, gólfefni, málningu og spörslun. Því er mikilvægt að hafa gluggafögin lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna.
 Íbúðareigandi gæti þurft að hreinsa sigti á blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í íbúðina og fylgjast með niðurföllum í þvottahúsi, baði og úti á svölum..
 Nauðsynlegt er að smyrja lamir á opnanlegum fögum og svalahurðum svo þau festist ekki.
 Við afhendingu skal kaupandi skoða íbúðina ítarlega. Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi, áður en hann hefur framkvæmdir í íbúðinni, afhenda fulltrúa Bygg undirritað eyðublað þar sem þessir ágallar eru taldir upp.
 Varast ber að setja plastfilmu eða merkingu á gler eða setja gardínur þétt að gleri vegna rakamyndunar og sprunguhættu.
 Hafi kaupandi einhver umkvörtunarefni fram að færa vegna hinnar seldu íbúðar, skal hann strax beina umkvörtun sinni til umsjóna- og tæknistjóra hússins.
 Íbúðarkaupendur gera sér grein fyrir að í sérgeymslum og öðrum geymslum geta verið lagnir í loftum og á veggjum sem nauðsynlegar eru vegna lagnaleiða hússins.
9. Mikilvægarupplýsingartilkaupaendafráseljanda
 Í nýjum íbúðum er mikill byggingaraki í steypuvirkinu. Þessi raki mun hverfa á einu til tveimur árum að mestu en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri. Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt gluggann, gólfefni, málningu og spörslun. Því er mikilvægt að hafa gluggafögin lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna.
 Þar sem minnst er á gerð tækja í innréttingum í skilalýsingu er átt við tæki af sambærilegri gerð og gæðum. Sama á við um birgja og efnissala. Seljandi áskilur sér rétt til breytinga á byggingartímanum en er þá miðað við sambærilega vöru.
 Íbúðareigandi þarf að hreinsa sigti á blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í íbúðina og fylgjast með niðurföllum í þvottahúsi, baði og úti á svölum.
 Varast ber að setja plastfilmu eða merkingu á gler eða setja gardínur þétt að gleri vegna rakamyndunar og sprunguhættu.
 Nauðsynlegt er að smyrja lamir á opnanlegum fögum og svalahurðum svo þau festist ekki.
 Ekki er mælst til þess að setja heita potta eða pönnur beint ofan á steinplötur í eldhúsum vegna
sprunguhættu.
 Seljandi áskilur sér rétt til að láta breyta teikningum á byggingartímanum í samráði við arkitekta
og hönnuði að fengnu samþykki byggingaryfirvalda sé þess þörf vegna tæknilegra útfærslna.
 Minniháttar misræmi getur verið á milli teikninga arkitekta, söluteikninga og sérteikninga
innrétting
 Seljandi áskilur sér allan rétt til þess að gera efnis-, tæknilegar- og útlitsbreytingar á meðan á
byggingarframkvæmdum stendur.
 Við afhendingu skal kaupandi skoða íbúðina ítarlega. Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi,
áður en hann hefur framkvæmdir í íbúðinni, afhenda fulltrúa BYGG undirritað eyðublað þar sem þessir ágallar eru taldir upp og skal byggingaraðili lagfæra þau atriði eins fljótt og auðið er. Eins eru allar íbúðir yfirfarðar u.þ.b. ári eftir sölu og ef eitthvað þykir ábótavant í þeirri yfirferð og fellur ekki undir eðlilegt viðhald fasteigna skal það lagfært eins fljótt og auðið er.
 Við lögn á gólfefnum skal íbúðareigandi yfirfara gólfflöt og ganga úr skugga um að engar misfellur séu til staðar, ef íbúðareigandi verður var við misfellur á gólfflöt íbúðarinnar skal hann koma þeim ábendingum til verkstjóra eða verkefnasjóra BYGG áður en gólfefni eru lögð. Einnig er mælst til
með að sett sé fjaðrandi þéttiefni í fúgu á milli gólfefna og veggja. Fylgja skal fyrirmælum efnissala
við frágang gólfefna.
 Í íbúðinni er anhydrít gólf ílögn með gólfhita og verður því að nota varmaleiðandi dúk undir
gólfefni þar sem við á. Í gólfinu getur verið töluverður raki og þá er nauðsynlegt að rakagrunna gólfið áður en niðurlímt gegnheilt parket er lagt á gólf ílögnina.Þegar niðurlímt parket er lagt skal ekki líma niður dúk eða parket undir gólfsíðum gluggum eða þar sem anhydrít slítur sig frá veggjum sökum hljóðleiðni.
 Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í múr, steypu og timbri og/eða öðrum atriðum sem heyra undir eðlilegt viðhald hússins og almenna umhirðu.
 Kaupandi ber ábyrgð á lóð hússins frá lokaúttekt, þ.m.t. gróðri.
 Allar breytingar að ósk kaupanda þurfa að fara í gegnum verkefnastjóra á hverjum byggingarstað
og hafa þær áhrif á afhendingartíma til seinkunar. Breytingar geta leitt til kostnaðarauka.

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/04af6342-0002-4967-b4e2-8aef623e91c1
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
