listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Hús – Kópavogur

Hús – Kópavogur
Hús – Kópavogur - Aðalmynd

Hús til sölu, 446 m²

Kópavogur

4 Svefnherbergi·2 Baðherbergi

360.000.000 kr.

807.537 kr./m²

Skráð 23. okt. 2026

Um þessa auglýsingu

GLÆSILEG OG NÝLEG EIGN Í KÓPAVOGINUM Jason Kristinn, sími 7751515 og Betri Stofan fasteignasala kynna: Glæsilegt tæplega 450 fm einbýlishús á útsýnisstað í Auðnukór 9 Í Kópavogi. Myndband með hugmyndum unnið úr ljósmyndum af húsinu. Húsið stendur á einstakri lóð, innst í botnlanga við stórt opið grænt svæði ofan við golfvöll GKG. Afstaða hússins er góð, innra skipulag frábært og hönnun falleg. Engu hefur verið til sparað við efnisval. Húsið er einangrað að utan og klætt og því viðhaldslétt. Stór 991 fermetra endalóð með útsýni. Nánari lýsing: Efri hæð Anddyri: Gengið er inn á efri hæðina í anddyri með skápum. Eldhús: Er með fallegri hvítlakkaðri innréttingu, eldunareyju og kvartsstein á borðum. Miele tæki. Vínkælir. Eldhús er sérlega rúmgott og er opið inn í stórar stofur. Stofur: Rúmgóðar og bjartar stofur. Úr stofu er stórglæsilegt útsýni. Hægt að ganga sunnan megin og vestan megin út á svalir. Gasarinn í stofu. Gólfsíðir gluggar með óheftu útsýni til vesturs. Baðherbergi er með sturtu. Svefnherbergi sem er 14,3 fm innanmál. Þvottahús: rúmgott þvottahús og gott auka svefnherbergi. Vinnukrókur er einnig á hæðinni. Bílskúr: Rúmgóður 60,3 fermetrar að stærð og vel útbúinn. Tvískiptur annars vegar með miklu skápaplássi og þar er hurð til hliðar við anddyri. Neðri hæð Gengið er niður steyptan stiga á neðri hæð og komið í hol. Sjónvarpsherbergi sem er um 30 fermetrar. Frístundarherbergi: Hluti af því rými er ekki skráð inn í birta fermetra og er húsið því stærra en skráning segir til um. Tvö rúmgóð svefnherbergi sem bæði eru yfir 14 fermetrar. Aðalsvefnherbergi: Rúmgott herbergi með fataherbergi og stóru baðherbergi með baðkari og "walk in" sturtu Útgengt er frá baðherberginu út í yfirbyggðan heitan pott og rúmgóða gufu. Svalalokun til að ganga út í garð. Gólfhiti er í húsinu og hljóðkerf. Stillanlegt með hússtjórnarkerfi. Stórt steypt plan er fyrir utan húsið og meðfram húsinu allan hringinn. Hiti er í planinu sunnan megin við húsið. Norðan megin við húsið er pláss fyrir bílastæði eða hjólhýsi. Húsið er skráð í fasteignaskrá tæplega 400 fm en neðri hæð er stærri en skráning segir til um og er í heilda um 450 fermetrar Einstök staðsetning, fallegt útsýni. Stutt á frábæran golfvöll GKG. Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775-1515 - löggiltur fasteignasali. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður: 1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Hvað er innifalið

Svalir
Garður
Bílskúr
Íbúðarflatarmál445.79999923706055 m²
Svefnherbergi4
Baðherbergi2
Herbergi7
Byggingarár2011

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

360.000.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

1.546.046 kr./mán

Útborgun20 % · 72.000.000 kr.
72.000.000 kr.288.000.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla556.576.659 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.