# fjolb, Skipasund 84, Reykjavík

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/0898c2b3-b22a-48e1-a9d4-e5c2f56ec20f

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** removed
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 59,900,000 ISK
- **Location:** Reykjavík, IS
- **Floor area:** 70.5 m²
- **Bedrooms:** 2
- **Published:** 2026-08-10T16:14:12.421Z
- **Last updated:** 2026-10-08T07:49:03.397Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Þorsteinn Ólafs löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu, kynnir fallega 3ja herbergja íbúð á jarðhæð að Skipasundi 84 í Reykjavík. Íbúðin er í þríbýlishúsi. Garður er stór og gróinn í skjólsælu hverfi. Göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, hverfaverslun o.fl. þjónustu.
Eignin skiptist í forstofu, bjarta og góða stofu, eldhús, tvö stór svefnherbergi með fataskápum, gang og baðherbergi auk geymslu í sameign og sameiginlegs þvottahúss. Íbúðin er skráð 70,5 m2 hjá Þjóðskrá Íslands. Hér má sjá 3D af íbúðinni:

Nánari lýsing:
Forstofuhol er inn af anddyri við útidyrahurð. Innan íbúðar er komið inn á parketlagt gólf sem flæðir um flest rými og er án þröskulda. Parket var lagt nýtt fyrir um fimm árum.
Stofa er með gluggum á tvo vegu. Parket á gólfi.
Eldhús er með hvítri eldhúsinnréttingu og háf. Stæði og tengi fyrir uppþvottavél er inni í innréttingu sem fylgir með. Ísskápur getur einnig fylgt. Dökkar korkflísar á gólfi.
Herbergi I er rúmgott með hvítum viðarfataskápum sem ná upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi II er með ljósum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með sturtuklefa og nýlegu salerni. Handlaug í hvítri innréttingu. Veggfestur speglaskápur yfir handlaug og innfelldur skápur bak við hurð. Gráar veggflísar.
Geymsla er skv. teikningum þar sem nú er svefnherbergi. Rými undir stiga í sameign nýtist sem geymsla.
Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni - hver með sína vél. Garður er stór og gróinn.

Skipasund 84 er frábærlega staðsett hús í nágrenni við Laugardalinn, sundlaug, skóla, verslun og þjónustu.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212 / .

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu 69.900 m. vsk.

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/0898c2b3-b22a-48e1-a9d4-e5c2f56ec20f
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
