listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Hús – Garðabær

Hús – Garðabær
Hús – Garðabær - Aðalmynd
Ekki lengur í boði

Þessi auglýsing er ekki lengur virk. Við geymum hana til viðmiðunar, en upplýsingarnar gætu verið úreltar.

Hús til sölu, 191 m²

Garðabær

4 Svefnherbergi·2 Baðherbergi

169.500.000 kr.

889.297 kr./m²

Skráð 26. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 eða og Betri Stofan fasteignasala kynna: Langafit 24 - Einbýli 210 Garðabær. Laus strax við samning og eigandi skoðar SKIPTI á minni íbúð/íbúðum uppí. Glæsilegt og algjörlega endurnýjað einbýlishús við Löngufit 24 í Garðabæ. Um er að ræða einstaklega fallegt og vel skipulagt 190,6 fm einbýlishús, þar af 23,3 fm Stúdíóíbúð, á rólegum og fjölskylduvænum stað í Garðabæ. Eignin hefur verið tekin mikið í gegn og endurnýjuð með áherslu á vandaðan frágang, fallega hönnun og góð efni. Gólfhiti er um alla eignina, votrými hafa verið flísalögð og allar innréttingar eru vandaðar Schmidt-innréttingar frá Parka. Nýtt þak er á húsinu sem og gluggar og hurðar. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, sjónvarpshol, þvottahús, geymslu og tvö baðherbergi. Í bílskúr hefur verið útbúin stúdíóíbúð, sem býður upp á fjölbreytta möguleika, hvort sem er til útleigu, fyrir fjölskyldumeðlimi, gesti eða sem sértækt rými fyrir heimilisfólk. Nánari lýsing eignar Forstofa: Rúmgóð og falleg forstofa með góðum fataskáp. Stofa og borðstofa: Stofa og borðstofa eru í opnu, björtu og fallega hönnuðu samliggjandi rými. Þaðan er gengið út á fallegan timburpall sem snýr til suðvesturs. Eldhús: Glæsilegt og vandað eldhús með Schmidt-innréttingu frá Parka. Á borðplötum er vandaður SapienStone steinn, sem setur mikinn svip á rýmið. Eldhúsið er með innbyggðum heimilistækjum og ofni í vinnuhæð. Það er opið við stofu og borðstofu og myndar þannig skemmtilega og samhangandi heild. Sjónvarpshol: Niður þrjú þrep úr holi er komið í rúmgott og glæsilegt sjónvarpshol sem getur einnig nýst sem notaleg betri stofa eða fjölskyldurými. Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðum fataskáp. Svefnherbergi II: Gott svefnherbergi með fataskáp. Svefnherbergi III: Gott svefnherbergi með fataskáp. Þvottahús: Þvottahús er staðsett inn af eldhúsi. Flísar eru á gólfi og þaðan er hurð með beint útgengi í garð. Baðherbergi: Glæsilegt og vandað baðherbergi með Schmidt-innréttingu frá Parka og SapienStone steini á borðplötu. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með rúmgóðri walk-in sturtu, gólfhita og glugga. Baðherbergi II: Fallegt og vandað baðherbergi með Schmidt-innréttingu frá Parka og SapienStone steini. Flísalagt í hólf og gólf, með walk-in sturtu og gólfhita. Bílskúr / stúdíóíbúð: Í bílskúrnum hefur verið útbúin stúdíóíbúð sem býður upp á mikla möguleika. Hún getur hentað vel til útleigu, fyrir fjölskyldumeðlim, ungling eða gesti og gefur eigninni aukið notagildi. Staðsetning: Eignin er einstaklega vel staðsett við Löngufit í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Garðabæ. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, þjónustu og fjölbreytt útivistarsvæði. Glæsilegt og algjörlega endurnýjað einbýlishús við Löngufit 24 í Garðabæ. Bókið skoðun í dag: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - löggiltur fasteignasali. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður: 1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Hvað er innifalið

Svalir
Garður
Bílskúr
Íbúðarflatarmál190.59999923706056 m²
Svefnherbergi4
Baðherbergi2
Herbergi7
Byggingarár1963

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

169.500.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

727.930 kr./mán

Útborgun20 % · 33.900.000 kr.
33.900.000 kr.135.600.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla262.054.843 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.