# einb, Langafit 24, Garðabær

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/186be35f-a755-4e1e-afd7-b3bda79e5dce

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** removed
- **Transaction:** sale
- **Category:** house
- **Asking price:** 169,500,000 ISK
- **Location:** Garðabær, IS
- **Floor area:** 190.59999923706056 m²
- **Bedrooms:** 4
- **Published:** 2026-10-03T07:51:12.798Z
- **Last updated:** 2026-11-02T13:49:02.167Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 eða og Betri Stofan fasteignasala kynna: Langafit 24 - Einbýli 210 Garðabær.

Laus strax við samning og eigandi skoðar SKIPTI á minni íbúð/íbúðum uppí.

Glæsilegt og algjörlega endurnýjað einbýlishús við Löngufit 24 í Garðabæ.
Um er að ræða einstaklega fallegt og vel skipulagt 190,6 fm einbýlishús, þar af 23,3 fm Stúdíóíbúð, á rólegum og fjölskylduvænum stað í Garðabæ.

Eignin hefur verið tekin mikið í gegn og endurnýjuð með áherslu á vandaðan frágang, fallega hönnun og góð efni. Gólfhiti er um alla eignina, votrými hafa verið flísalögð og allar innréttingar eru vandaðar Schmidt-innréttingar frá Parka. Nýtt þak er á húsinu sem og gluggar og hurðar.

Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, sjónvarpshol, þvottahús, geymslu og tvö baðherbergi. Í bílskúr hefur verið útbúin stúdíóíbúð, sem býður upp á fjölbreytta möguleika, hvort sem er til útleigu, fyrir fjölskyldumeðlimi, gesti eða sem sértækt rými fyrir heimilisfólk.

Nánari lýsing eignar
Forstofa: Rúmgóð og falleg forstofa með góðum fataskáp.
Stofa og borðstofa: Stofa og borðstofa eru í opnu, björtu og fallega hönnuðu samliggjandi rými. Þaðan er gengið út á fallegan timburpall sem snýr til suðvesturs.
Eldhús: Glæsilegt og vandað eldhús með Schmidt-innréttingu frá Parka. Á borðplötum er vandaður SapienStone steinn, sem setur mikinn svip á rýmið. Eldhúsið er með innbyggðum heimilistækjum og ofni í vinnuhæð. Það er opið við stofu og borðstofu og myndar þannig skemmtilega og samhangandi heild.
Sjónvarpshol: Niður þrjú þrep úr holi er komið í rúmgott og glæsilegt sjónvarpshol sem getur einnig nýst sem notaleg betri stofa eða fjölskyldurými.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðum fataskáp.
Svefnherbergi II: Gott svefnherbergi með fataskáp.
Svefnherbergi III: Gott svefnherbergi með fataskáp.
Þvottahús: Þvottahús er staðsett inn af eldhúsi. Flísar eru á gólfi og þaðan er hurð með beint útgengi í garð.
Baðherbergi: Glæsilegt og vandað baðherbergi með Schmidt-innréttingu frá Parka og SapienStone steini á borðplötu. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með rúmgóðri walk-in sturtu, gólfhita og glugga.
Baðherbergi II: Fallegt og vandað baðherbergi með Schmidt-innréttingu frá Parka og SapienStone steini. Flísalagt í hólf og gólf, með walk-in sturtu og gólfhita.
Bílskúr / stúdíóíbúð: Í bílskúrnum hefur verið útbúin stúdíóíbúð sem býður upp á mikla möguleika. Hún getur hentað vel til útleigu, fyrir fjölskyldumeðlim, ungling eða gesti og gefur eigninni aukið notagildi.

Staðsetning: Eignin er einstaklega vel staðsett við Löngufit í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Garðabæ. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, þjónustu og fjölbreytt útivistarsvæði.
Glæsilegt og algjörlega endurnýjað einbýlishús við Löngufit 24 í Garðabæ.

Bókið skoðun í dag: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - löggiltur fasteignasali.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/186be35f-a755-4e1e-afd7-b3bda79e5dce
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
