listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Þorlákshöfn, Móar, Sveitarfélagið Ölfus

Íbúð – Þorlákshöfn, Móar, Sveitarfélagið Ölfus
Íbúð – Þorlákshöfn, Móar, Sveitarfélagið Ölfus - Aðalmynd

4 herbergja til sölu, 157 m²

Þorlákshöfn, Móar, Sveitarfélagið Ölfus

3 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

109.900.000 kr.

700.000 kr./m²

Skráð 7. okt. 2026

Um þessa auglýsingu

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Stórglæsilega 126,4m2 þakíbúð ásamt 30,6m2 bílskúr að Hnjúkamóa 14, íbúð 0502. Íbúðin er með stórglæsilegu útsýni! Íbúðin er með tvennum svölum til vesturs og norð/vesturs. Tenging fyrir heitan pott og saunaklefa er á svölunum. Aukin lofthæð er í íbúðinni og gólfsíðir gluggar. Kaupendur hafa aukinn sveigjanleika í efnis- og tækjavali. ** Hægt er að bóka einkaskoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á ** Sjá einnig myndir neðst á síðu á: https://stofnhus.is/hnjukamoi-14/ Eignin telur: * Rúmgóða forstofu með stórum skápum. * Stórglæsilega stofu og eldhús í opnu rými, með stórum, gólfsíðum gluggum sem snúa í vestur og norð/vestur. * Í eldhúsi er falleg, sérsmíðuð Voke III innrétting, ljós í bland við dökka viðaráferð, vönduð AEG heimilistæki; sjálfhreinsandi ofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og kæli-/frystiskápur. Borðplöturnar eru slitsterkar kvartseinsplötur frá Technistone. * Utangengt er úr stofunni á 81,3m2 timburklæddar svalir með glæsilegu útsýni. Tengi er fyrir heitan pott og saunaklefa er á svölum. * Stórt sjónvarpsherbergi sem á einfaldan hátt er hægt að loka og breyta í svefnherbergi / vinnuherbergi. * 2-3 stór svefnherbergi. * Utangengt er á 8,6m2 auka-svalir úr hjónasvítu. * Stórt fataherbergi inn af hjónasvítunni. * Glæsilegt baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu, sturtu úr glerþili með innbyggðum sturtutækjum og fallegum og endingargóðum Grohe hreinlætisækjum, upphengdu wc og innréttingu með speglaskáp. Á gólfi og 2 veggjum á baðherberginu eru ítalskar 60x120cm ljósar flísar. * Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á innaf baðherberginu á snyrtilegan hátt. * Á öllum gólfum, nema baðherbergi, er vandað BerryAlloc Connect XL8 Bloom harðparket með stórum plönkum frá Álfaborg * Innihurðir: Stílhreinar hvítlakkaðar yfirfelldar hurðir Dana SAX frá Parka. * LED-ljós frá Ískraft fylgir. * Lyfta er í húsinu. * Við húsið er stór, sameiginleg, lokuð hjóla- og vagnageymsla með epoxi á gólfi. Sorpgerði á lóð. * Á lóðinni eru 25 bílastæði í óskiptri sameign, þar af 2 fyrir hreyfihamlaða. * Rafhleðsla fyrir rafmagnsbíla. Háhraða ljósleiðaratenging er í húsinu. * Stéttar næst húsi og gangstígar á lóð verða steypt eða hellulagt, snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið og að sorpgerði. að öðru leyti verður lóð frágengin með þökum. Efnisval: Innréttingar: Ljósar innréttingar í bland við dökka viðaráferð, sérsmíðaðar af Voké-III. Borðplötur í eldhúsi eru vandaðar og slitsterkar kvartsteinsplötur frá Technistone Heimilistæki: Vönduð AEG tæki frá Rafha. Flísar á baðherbergi: Ljósar ítalskar 60x120 Ceramiche Piemme flísar frá Álfaborg Gólfefni: Vandað BerryAlloc Connect XL8 Bloom harðparket með stórum plönkum frá Álfaborg Innihurðir: Stílhreinar hvítlakkaðar yfirfeldar hurðir Dana SAX frá Parki Hreinlætistæki: Vönduð hreinlætistæki frá Grohe, innbyggð sturtutæki og flöt salerniskál. Lýsing: LED-ljós frá Ískraft fylgja öllum rýmum íbúða Rofar og tenglar: Hvítur rofabúnaður af gerðinni Jung, frá Reykjafell Lagnaefni: Vandað pípulagnu- og raflagnaefni frá traustum framleiðendum FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 ! Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn. Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/ S 483 3424 Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: KRÓNU VERSLUN Apótekarann. Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari) Vínbúðina. Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant) Super1 pizza (facebook: super 1 pizza) Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð. Caffe Bristól. Hér er mjög góð heilsugæsla. Hér er góður tannlæknir. Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins: Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) og Landsbankinn Tómstundir og afþreying: Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri. Motorcrossá braut rétt utan við bæinn. Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna. Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun. Afþreying er hér af ýmsum toga: hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv. ** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is

Hvað er innifalið

Svalir
Lyfta
Bílskúr
Flatarmál157.00000038146973 m²
Herbergi4
Svefnherbergi3
Baðherbergi1

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

109.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

471.974 kr./mán

Útborgun20 % · 21.980.000 kr.
21.980.000 kr.87.920.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla169.910.486 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.