listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Hús – Reykjavík, Sel, Breiðholt

Hús – Reykjavík, Sel, Breiðholt
Hús – Reykjavík, Sel, Breiðholt - Aðalmynd

Hús til sölu, 244 m²

Reykjavík, Sel, Breiðholt

5 Svefnherbergi·2 Baðherbergi

152.000.000 kr.

622.441 kr./m²

Skráð 7. okt. 2026

Um þessa auglýsingu

Borgir fasteignasala kynnir eignina Klyfjasel 20, 109 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 205-7475 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Klyfjasel 20 er samkvæmt FMR 244.2fm fjölskylduvænt einbýlishús á þremur hæðum sem stendur efst við rólegan botlanga í grónu hverfi. Fyrir aftan húsið tekur á móti þér stórt opið svæði og falleg náttúra sem skapar einstaka nálægð við útivist og friðsælt umhverfi. Á lóðinni er möguleiki á að byggja aukabyggingu, sem opnar á frekari nýtingamöguleika fyrir framtíðar eigendur. Um er að ræða innbyggðan bílskúr sem búið er að innrétta sem snyrtilega íbúðaraðstöðu með sér inngangi sem er utan fermetratölu og er því raunstærð nær 270fm. Seljendur skoða skipti á minni eign. Baðherbergi á jarðhæð var tekið í gegn árið 2014 Skipt var um öll gler á miðhæðinni árið 2016 Húsið málað að utan 2018 Skipt var um gler á jarðhæð 2018-2019 Lagnagrind og rafmagn í húsi endurnýjað 2018 Ofnar á efri tveim hæðum hússins voru settir upp 2017 og 2018 Steypuviðgerðir fóru fram á húsinu 2018 og 2019 Eldhústæki, borðplata og vaskur endurnýjað 2018 Íbúðaraðstaða á jarðhæð var kláruð í janúar 2019 með nýjum innréttingum og gólfefnum. Einnig skipt um gler 2018-2019 Þakið málað 2024 Nánari upplýsingar veita: Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur . Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123,tölvupóstur Nánari lýsing eignar: Jarðhæð: Anddyri: Flísalagt með góðum fataskáp. Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi. Baðherbergi: Með flísum á veggjum og gólfi, handklæðaofni, upphengdu salerni og innangengri sturtu. Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi Tvær rúmgóðar geymslur, stigi með teppi. Miðhæð: Stofa/borðstofa: Í björtu og mjög rúmgóðu rými með harð parket á gólfi. Útgengt er á tveimur stöðum, annars vegar á mjög rúmgóðar suðursvalir með nýju handriði og hinsvegar úr stofu út í stóran og fallegan garð. Eldhús: Þar sem gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp, bakarofni í vinnuhæð og helluborði. Þvottahús: Er flísalagt með útgengi í garð. Gott skápapláss og vaskur. Flísar á gólfi. Efsta hæð: Baðherbergi: Með baðkari, tveimur vöskum, gert er ráð fyrir sturtu. Svefnherbergi I: Með fjórföldum fataskáp harðparketi á gólfi. Svefnherbergi II: Rúmgott með harðparketi á gólfi. Svefnherbergi III: Rúmgott með harðparketi á gólfi. Góður gangur/sjónvarpshol á milli herbergja með harðparketi á gólfi, þar er hægt að ganga út á svalir til norðversturs með fallegur útsýni. Aukaíbúðaraðstaða með sérinngangi: Íbúðaraðstaðan á jarðhæð skiptist í stofu og eldhús í opnu rými, svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi. Hluti íbúðaraðstöðu er ekki innifalin í uppgefinni fermetratölu hússins. Smáhús/stakstætt: Heimilt er að byggja eitt stakstætt hús, allt að 40fm á einni hæð. Mesta hæð þaks stakstæða hússins má vera 3,5m mælt frá yfirborði jarðvegs. Þakgerð stakstæða hússins skal taka mið af þaki aðalbyggingar. Húsið skal falla útlitslega að en hafa víkjandi stöðu gagnvart aðalbyggingu. Aðalbyggingin og stakstæða húsið á lóðinni skulu vera í sömu eigu. Umhverfi: Stutt er í leikskóla, skóla og verslun. Ósnortin náttúra er aftan við húsið. Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 mvsk.

Hvað er innifalið

Svalir
Garður
Íbúðarflatarmál244.2 m²
Svefnherbergi5
Baðherbergi2
Herbergi10
Byggingarár1983

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

152.000.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

652.775 kr./mán

Útborgun20 % · 30.400.000 kr.
30.400.000 kr.121.600.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla234.999.034 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.