Hús – Kópavogur
Ekki lengur í boði

Þessi auglýsing er ekki lengur virk. Við geymum hana til viðmiðunar, en upplýsingarnar gætu verið úreltar.

Hús til sölu, 236 m²

Kópavogur

6 Svefnherbergi3 Baðherbergi

132.500.000 kr.

560.491 kr./m²

Skráð 6. ágú. 2026

Um þessa auglýsingu

Domusnova og Vera kynna spennandi tækifæri: Tæplega 240 m² raðhús ásamt bílskúr og aukaíbúð í kjallara við Skólatröð 3 í 200 Kópavogi. Eignin skiptist í 196 m² íbúðarrými og 41 m² bílskúr. Í kjallara er 2ja herbergja aukaíbúð með sér inngangi — tilvalin til útleigu. Hér er á ferðinni rúmgott fjölskylduheimili með 6 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum á grónum og eftirsóttum stað. Þó eignin sé að hluta til upprunaleg og kalli á endurbætur felast í því miklir möguleikar, hér gefst tækifæri til að móta heimili að eigin höfði. Einstök staðsetning — allt í göngufæri. Staðsetningin er sérlega barnvæn og þægileg fyrir fjölskyldufólk. Bæði leikskóli og grunnskóli eru í göngufæri og börn þurfa ekki að fara yfir götu á leið í skólann. Þá er örstutt í framhaldsskóla, Menntaskólann í Kópavogi, sem er sömuleiðis í göngufæri. Stutt er í alla helstu þjónustu og góðar almenningssamgöngur. Eignin er laus við kaupsamning. ALLARU UPPLÝSINGAR Vera Sigurðardóttir lgf. í síma: 8661110 eða netfang: Endurbætur 2025: Skólp fóðrað út í götu. Ný stétt og innkeyrsla. Innan við 10 ára: Þakjárn endurnýjað. Herbergjaskipan Hæð 1: Forstofa. Eldhús/stofa/borðstofa og sólstofa með útgengi út í garð. Hæð 2: Hjónaherbergi með útgengi út á svalir, 3 barnaherbergi og baðherbergi. Kjallari: 2ja herbergja aukaíbúð með sér inngangi og salerni. Bílskúr: 41 m². Fasteignamat næsta árs 134.800.000 kr. ALLARU UPPLÝSINGAR Vera Sigurðardóttir lgf. í síma: 8661110 eða netfang: Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Hvað er innifalið

Bílskúr

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.