listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Hús – Hafnarfjörður

Hús – Hafnarfjörður
Hús – Hafnarfjörður - Aðalmynd

Hús til sölu, 394 m²

Hafnarfjörður

7 Svefnherbergi·3 Baðherbergi

235.000.000 kr.

597.053 kr./m²

Skráð 26. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - og Betri Stofan kynna: Lindarberg 8, 221 Hafnarfjörður. Glæsilegt 8 herbergja (7 svefnh.) einbýlishús (tengihús) með innb.bílskúr (uþb. 50 m2) samtals 393,6 fm. Frábær staðsetning og útsýni yfir bæinn og fjörðinn, í hinu vinsæla Setbergslandi Hfj. Gengið er inn í húsið á 2. hæð: Forstofur eru tvær, sitt hvorum megin á húsinu. Önnur forstofan er notuð sem fjölskyldu-inngangur og hin sem gesta-inngangur. Fjölskyldu-megin er gott fataherbergi inn af forstofunni og innangengt er í bílskúrinn sem er rúmgóður og vel skipulagður. Miðrýmið er með parket á gólfi, rúmgott eldhús og stofu þar sem er skemmtilegur arinn. Einnig er útgengi út á flísalagðar svalir með tröppum niður á stóran og rúmgóðan sólpall. Á miðhæðinni eru tvö herbergi með parketi á gólfi og fataskápum. Gestasnyrting er með flísum á gólfum. Gengið er upp stiga á 3.hæð: Stiginn er með gegnheilu parketi. Tvö stór herbergi, annað með parketi á gólfi og hitt með floti og er undir súð. Gengið er niður á 1.hæð: Samskonar stigi og á 3. hæð. Komið er niður í skemmtilegt opið rými sem skiptist í tómstunda-stofu og sjónvarpsaðstöðu með útgengi út á sólpall. Á 1. hæð eru 3 svefnherbergi, tvö mjög rúmgóð og eitt þeirra með stóru fataherbergi og útgengt er þaðan út á sólpallinn. Stórt glæsilegt baðherbergi með flísum á gólfi. Baðkar og sturta sem grafið hefur verið inn í bergið, virkilega skemmtileg spa stemmning þar. Útgengi er frá baðherbergi og út á sólpall. Einnig er glæsilegt ný-uppgert þvottahús með baðherbergi þar sem flísar eru á veggjum og gólfi. Garður er mjög fallegur með háum trjám og glæsilegri hellulögn. Tvö hellulögð bílaplön eru við húsið. Einnig eru stæði á móti húsinu fyrir 6-7 bíla. Húsið er á tveimur fastanúmerum samkvæmt þjóðskrá Íslands. Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - löggiltur fasteignasali. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður: 1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Hvað er innifalið

Svalir
Garður
Bílskúr
Íbúðarflatarmál393.6 m²
Svefnherbergi7
Baðherbergi3
Herbergi8
Byggingarár1990

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

235.000.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

1.009.225 kr./mán

Útborgun20 % · 47.000.000 kr.
47.000.000 kr.188.000.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla363.320.874 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.