landomo.cz
//Reykjavík
fjolb, Laugavegur 168 íb606 Heklureitur, Reykjavík
1 af 22
fjolb, Laugavegur 168 íb606 Heklureitur, Reykjavík - Aðalmynd
1/22

3 herbergja til sölu, 98 m²

Reykjavík

121.900.000 kr.

1.238.821 kr./m²

Listed 13 days ago · 19 Jun 2026

Íbúð

Flokkur

98.4 m²

Flatarmál

Um þessa auglýsingu

Fasteignasalan TORG Kynnir: Glæsileg 3 herbergja íbúð með hjónasvítu og bílastæði í bílakjallara. Íbúð merkt:606, sem skilast fullbúin án gólfefna. Alls er eignin 98,4 fm að stærð ásamt geymslu á 6. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 88,6 fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi m/eyju, borðstofu og stofu með útgengi út svalir. Hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi, svefnherbergi með loftháum skápum, baðherbergi með vandaðri innréttingu og tækjum ásamt þvottaaðstöðu og sér geymsla í sameign merkt: 0026, skráð 9,8 fm, og bílastæði merkt: B19. Hönnunarþema íbúðar er Bjarmi með mistral borðplötum (sjá mynd).   Allar nánari upplýsingar, teikningar ásamt skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Aðalsteinn Bjarnason, lögg. fasteignasali í GSM: 773-3532 eða [email protected]   Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR Sækja söluyfirlit HÉR Heklureiturinn.  Heklureiturinn sem er Laugarvegur 168 – 174 er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag.  Reiturinn liggur vel við öllum samgönguæðum, stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá er örstutt að ganga í miðbæinn en samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu. Úrval íbúða er einstakt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum og munu henta fyrir nánast allar fjölskyldugerðir. Nokkrar með sér inngangi og/eða inngangi af svalagangi. Allir stigagangar með lyftur. Í fyrsta áfanga verða 82 íbúðir að Laugarvegi 168 sem eru til afhendingar haustið 2025. Heildaruppbyggingin mun skila yfir 400 íbúðum alveg við miðborgina og verður umbylting í borgarmyndinni á þessum stað. Um er að ræða glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Laugarveg þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og  nýjustu Siemens tækjum. Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Studio Homestead kom að hönnun innréttinganna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Quarts steinn er á borðum eldhúss og baðherbergis sem sérframleiddur er á Ítalíu frá Santamargherita. Eldhústæki eru frá Siemens.  Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi. Skipulag: Deiliskipulagið að reitnum eru fimm byggingar frá Laugavegi 168-174  sem verður byggt í áföngum. Fyrsta húsið sem nú er í byggingu er Laugavegur 168. Skipulagið tekur mið af því að hámarka  gæði staðsetningarinnar, hvað varðar skjólið frá holtinu, útsýnið sem er í allar áttir og sérstaklega í átt að Esjunni, vestur yfir borgina og austur í fjallahringinn. Einnig til suðurs í átt að Perlunni. Götumynd verður endurbyggð í Brautarholti, Nóatúni og við Laugaveg. Við Laugaveginn verða þjónustu- og verslunarrými þar sem áætlað er að borgarlínan muni ganga framhjá. Nálægð við þjónustu og samgöngur gefur möguleika á bíllausum lífstíl en í kjallara verða bílastæðahús þar sem hægt er að aka út hvort sem er út á Laugaveginn eða Nóatún Hönnun: Að hönnun húsanna á Heklureitnum koma tvær arkitektastofur, Teikna teiknistofa arkitekta og THG arkitektar. Var það gert til þess að auka fjölbreytnina í hönnuninni og sá önnur stofan um innra skipulag á meðan hin einbeitir sér að því að sjá um ytra útlit með því að skapa tilbreytni í uppbroti klæðninganna með litum og efnisvali. Um landslagshönnun sér síðan Lilja Filippusdóttir hjá Lilium teiknistofu. Áhersla var lögð á að hvert hús hefði sinn karakter og sérkenni en eru síðan bundin saman með sameinandi þáttum í landslagshönnuninni. Til að hámarka birtu stallast húsið niður til suðurs, það ásamt gólfsíðum gluggum í flestum íbúðum eykur birtu innan íbúða. Myndir tölvugerðar og aðeins til að gefa góða mynd af íbúðum. Sjá nánar skilalýsingu*Show more

Hvað er innifalið

Lyfta
Bílskúr
Lyfta

Lykiltölur

Flatarmál98.4 m²
Herbergi3
Svefnherbergi2
Baðherbergi2.0
LyftaJá
BílskúrJá

Auglýst á

Samstillt fyrir 17 klukkustundum

Mbl Is

121.900.000 kr.

Estimate

Investment economics

Estimated return if you let this apartment

Kort

Staðsetning

Reykjavík

Kort ekki tiltækt

Þessi auglýsing inniheldur ekki nákvæm hnit.

Hverfi

Þjónusta í nágrenninu

Reykjavík

Nákvæm staðsetning ekki tiltæk

Til að reikna vegalengdir þarf hnit auglýsingarinnar.

Fjármögnun

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

523.508 kr./mán

Vextir 5,00 %ÁHK 5,86 %
Útborgun 20 %Lán 80 %
24.380.000 kr.97.520.000 kr. lán
Heildarendurgreiðsla188.463.041 kr.
Vextir5,00 %
Árleg hlutfallstala kostnaðar5,86 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Rates updated apríl 2026

Free quote

Fáðu raunverulegt tilboð fyrir þessar tölur

Hversu fljótt ætlarðu að kaupa?

© 2026 Landomo. Allur réttur áskilinn.

Kortaskoðun
Heim
Apartment