listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Hús – Kópavogur

Hús – Kópavogur
Hús – Kópavogur - Aðalmynd

Hús til sölu, 106 m²

Kópavogur

3 Svefnherbergi·2 Baðherbergi

119.900.000 kr.

1.134.342 kr./m²

Skráð 7. okt. 2026

Um þessa auglýsingu

Vandað og nýlegt einbýlishús á tveimur hæðum með tveimur baðherbergjum, suðurpalli og tveimur upphituðum bílastæðum Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 105,7 m² vandað og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum við Kópavogsbraut 59D í Kópavogi. Húsið er byggt árið 2022 úr gegnheilum timbureiningum og einkennist af vönduðum frágangi, sérsmíðuðum innréttingum og góðri nýtingu rýma. Eignin býður meðal annars upp á tvö baðherbergi, gólfhita á báðum hæðum, skjólgóðan sérafnotareit til suðurs með palli, auk tveggja upphitaðra bílastæða með bílahleðslustöð. Staðsetningin er einstaklega fjölskylduvæn, með skóla handan götunnar, leikskóla og sundlaug í nágrenninu og stutt í fallegar göngu- og útivistarleiðir við strandlengju Kópavogs. - Frábær staðsetning miðsvæðis í Kópavogi - Tvö baðherbergi - Tvö upphituð bílastæði með bílahleðslustöð - Skjólgóður sérafnotareitur til suðurs með palli - Sérsmíðaðar innréttingar og gólfhiti á báðum hæðum Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða . Húsið er skráð 105,7 m² samkvæmt HMS. Auk þess fylgir eigninni óskráður um 2,8 m² geymsluskúr úr lerki. Eignin stendur á sameiginlegri lóð með Kópavogsbraut 59 A–D og fylgir henni sérafnotareitur. Ekkert formlegt húsfélag er starfandi. Nánari lýsing: Komið er inn um sérinngang í bjarta forstofu með fataskápum. Á neðri hæð er bjart alrými þar sem stofa og eldhús renna fallega saman. Stórir gluggar hleypa góðri birtu inn í rýmið og þaðan er útgengi á rúmgóðan og skjólgóðan pall til suðurs á sérafnotareit eignarinnar. Sólarfilma er í stærstu gluggum. Eldhúsið er vandað og vel skipulagt með sérsmíðaðri innréttingu frá KJK smíði og miklu skápaplássi. Þar er tvískiptur bökunarofn frá Samsung, spanhelluborð með innbyggðri viftu ásamt kastarabraut og ljósum úr Pfaff. Á neðri hæð er einnig rúmgott herbergi sem í dag er nýtt sem sjónvarpsherbergi, auk baðherbergis með sturtu og innréttingu. Teppalagður stigi, með teppi frá Parka, liggur upp á efri hæð. Undir stiganum hefur verið útbúið gott, lokað geymslurými með hurð sem nýtir rýmið einstaklega vel. Á efri hæð er hjónaherbergi með stórum fataskáp og útgengi á svalir. Þar er einnig barnaherbergi með góðum fataskáp. Baðherbergi á efri hæð er með sturtu og innréttingu. Húsið er því með tvö baðherbergi, eitt á hvorri hæð. Þvottahús er flísalagt, með mikilli lofthæð og vegghillum. Inn af þvottahúsi er geymsla. Gólfefni og frágangur: Gólfefni eru frá Birgisson og gólfhiti er á báðum hæðum. Allar innihurðir eru sérsmíðaðar og 220 cm á hæð og rofar og tenglar eru frá S. Guðjónsson. Útisvæði og bílastæði: Úr stofu er gengið út á skjólgóðan pall til suðurs sem myndar notalegt framhald af alrými hússins. Eigninni fylgir sérafnotareitur og sameiginlegur garður er með húsunum að Kópavogsbraut 59 A–D. Grindverk, pallar, skjólgirðingar og skýli eru úr lerki og eru því viðhaldslítil. Eigninni fylgja tvö upphituð bílastæði með bílahleðslustöð. Auk þess fylgir um 2,8 m² óskráður geymsluskúr úr lerki. Staðsetning: Kópavogsbraut 59D er einstaklega vel staðsett fyrir fjölskyldur. Skóli er handan götunnar og leikskóli og sundlaug eru einnig í næsta nágrenni. Stutt er í alla helstu þjónustu og verslun, auk þess sem falleg strandlengja Kópavogs og fjölbreyttar göngu- og útivistarleiðir eru innan seilingar. Hér sameinast miðsvæðis staðsetning, fjölskylduvænt umhverfi og nálægð við bæði þjónustu og útivist. Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða . Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Hvað er innifalið

Svalir
Garður
Íbúðarflatarmál105.7 m²
Svefnherbergi3
Baðherbergi2
Herbergi4
Byggingarár2022

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

119.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

514.919 kr./mán

Útborgun20 % · 23.980.000 kr.
23.980.000 kr.95.920.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla185.370.948 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.