Hús – Garðabær, Akrar, Höfuðborgarsvæðið

Hús til sölu, 243 m²

Garðabær, Akrar, Höfuðborgarsvæðið

4 Svefnherbergi3 Baðherbergi

189.900.000 kr.

782.770 kr./m²

Skráð 11. jún. 2026

Um þessa auglýsingu

Viltu fasteignir kynna Sandakur 12, 210 Garðabæ. Glæsilegt 5 herbergja raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Á sölusíðu eignarinnar getur þú nálgast sölyfirlit og önnur gögn um eignina.Einnig er hægt að gera tilboð í eignina á sölusíðunni. Sandakur 12 er vel staðsett 242,6m2 raðhús á rólegum og fjölskylduvænum stað miðsvæðis í Akrahverfinu. Um er að ræða 242,6 fermetra eign sem skiptist í 213,7 fermetra íbúð og 28,9 fermetra bílskúr. Eignin skiptist í forstofu, gang/hol, eldhús, stóra stofu/borðstofu, baðherbergi, geymslu og bílskúr á neðri hæð. Á efri hæð eru þvottahús, baðherbergi, tvö stór svefnherbergi og hjónasvíta með sér bað- og fataherbergi. Auðvelt er að bæta við fjórða svefnherberginu á hæðinni. Húsið er byggt úr forsteyptum einingum og klætt viðhaldslítilli álklæðningu og timburklæðningu.Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 242,6 fm, þar af er bílskúr 28,9 fmFasteignamat 2026 er 178.650.000,-. Nánari lýsingForstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fatahengi og inngangi í bílskúr og geymslu. Flísar á gólfi.Hol / gangur: Frá forstofu er komið inn í stórt hol í miðrými hússins þaðan sem gengið er inn í aðrar vistarverur. Parket á gólfum.Eldhús: Opið inn í miðrými hússins, spónlögð eikarinnrétting og hvít granít borðplata. Gott skápapláss. Parket á gólfi.Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum. Útgengt á sólpall til norðurs. Parket á gólfi.Pallur: Frá stofu er gengið á góðan pall. Undir pallinum eru lagnir fyrir heitan pott.Efri hæð: Úr miðrými húss er gengið um vandaðan stiga upp á efri hæð.Stofa/fjölskyldurými: Frá stiga er komið inn í miðrými hæðar þaðan sem gengið er inn í aðrar vistarverur. Góð sjónvarpsstofa/fjölskyldurými. Þessu rými er auðvelt að breyta í fjórða svefnherbergið. Parket á gólfum.Herbergi 1: Stórt og rúmgott með parketi á gólfi.Herbergi 2: Stórt og rúmgott með parketi á gólfi.Hjónasvíta: Stór og rúmgóð, sér baðherbergi með baðkari og rúmgott fataherbergi. Parket á gólfi. Frá hjónasvítu er úttgengt á góðar suðvestur svalirBaðherbergi: Með upphengdu salerni, handklæðaofni, sturtu. Flísar í hólf og gólf.Þvottahús: Rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Mjög gott skápapláss og vinnuvaskur. Flísar á gólfi.Geymsla: Góð geymsla er inn af forstofu á jarðhæð.Bílskúr: Innangengt frá forstofu.Bílaplan: Hellulagt bílaplan með hita. Tvær hleðslustöðvar fyrir rafbíla uppsettar.Lóðin: Snyrtileg og vel hirt lóð.Frábært tækifæri til að eignast góða eign í fallegu umhverfi á fjölskylduvænum stað í Garðabæ.Á sölusíðu eignarinnar getur þú nálgast sölyfirlit og önnur gögn um eignina.Einnig er hægt að gera tilboð í eignina á sölusíðunni. Allar nánari upplýsingar eru veittar í eða í síma 8459000. Fagljósmyndari tekur myndirnarVið sýnum eignina, þú slakar áEngin prósenta, ekkert vesen Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. * Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild. * Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild. Sláðu inn netfang og lykilorð til að komast inn á þitt vefsvæði á fasteignir.is. Ef þú ert ekki með aðgang þá geturðu fyllt út nafn og lykilorð hér til að nýskrá þig.

Hvað er innifalið

Garður
Bílskúr
Bílastæði

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.