# fjolb, Grenigrund 6, Kópavogur

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/430ce79c-e85d-4cb7-b3e5-9cce601cd43b

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** active
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 79,900,000 ISK
- **Location:** Grundir, Digranes, Kópavogur, IS
- **Floor area:** 125.60000076293946 m²
- **Bedrooms:** 3
- **Published:** 2026-07-13T15:45:46.328Z
- **Last updated:** 2026-08-20T16:02:03.217Z
- **Listed on:** mbl-is, fasteignaleitin-is, fasteignir-is

## Description

Domusnova og Vilborg kynna nýtt á einkasölu:
4ra HERBERGJA SÉRHÆÐ MEÐ BÍLSKÚR Í FJÖLSKYLDUVÆNU OG GRÓNU HVERFI VIÐ GRENIGRUND 6, KÓPAVOGI. Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur með 1.hæð, gengið upp teppalagðan stiga að íbúð á stigapall með útgengi á svalir.
Hol er rúmgott og tengir vistarverur íbúðar saman. Fatahengi í holi, parket á gólfi.
Eldhús var endurnýjað 2018. Hvít Ikea innrétting með góðum skápum. Innbyggð uppþvottavél, tveir ofnar í vinnuhæð og span helluborð.
Stofa/borðstofa liggur saman í opnu rými með eldhúsi. Parket á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú öll með plastparketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp þaðan er útgengi á austur svalir.
Herbergi II er rúmgott. Gluggar til austurs.
Herbergi III með gluggum til norðurs.
Baðherbergi var endurnýjað 2019, flísalagt í hólf og gólf, með sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél.
Sér geymsla íbúðar er í sameign í kjallara hússins.
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara, gengið er í frá stigagangi á 1. hæð.Útgengt er frá þvottahúsi út á bílaplan norðan megin húss.
Bílskúr: 26,2 fm, gluggar á suðurhlið bílskúrs.
Sér bílastæði íbúðar framan við bílskúr. Auk þess eru sameiginleg bílastæði á lóð. Að sögn seljanda hafa eftirfarandi endurbætur átt stað á húsi:
Þakið var tekið í gegn 2006 og var þá sett nýtt járn - unnið af fagaðila. Núverandi eigendur hafa farið eftirtaldar endurbætur á eigninni að þeirra sögn:
Eldhús fært inn í stofurýmið. Nú er svefnherbergi þar sem áður var eldhús. (unnið af eiganda) Baðið endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf. Sett upp sturta þar sem áður var baðkar og öll tæki endurnýjuð ásamt lögnum. Íbúðin parketlögð. Skipt um rafmagnstengla og slökkvara að mestu. Rafmagnstafla endurnýjuð bæði í húsi og í íbúð. Bílskúrinn málaður að utan 2023. Stigagangur í sameign málaður 2019. Staðsetning eignarinnar er á fjölskylduvænum og eftirsóknaverðum stað í Kópavogi. Um er að ræða afar veðursælan stað í næsta nágrenni við Fossvogsdalinn með alla sína útivistarmöguleika.
Stutt er í Snælandsskóla, Álfhólsskóla, leikskóla og íþróttasvæði. Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir, sími 891 8660 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir. Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/430ce79c-e85d-4cb7-b3e5-9cce601cd43b
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
