# radpar, Blómvellir 21, Hafnarfjörður

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/4357ff6e-e9dc-4039-bc7b-221dd3eb2281

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** removed
- **Transaction:** sale
- **Category:** house
- **Asking price:** 136,000,000 ISK
- **Location:** Hafnarfjörður, IS
- **Floor area:** 186.70000076293945 m²
- **Bedrooms:** 4
- **Published:** 2026-08-21T17:12:50.584Z
- **Last updated:** 2026-09-27T19:49:00.834Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Einstaklega fallegt og vel skipulagt 5-6 herbergja raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr,
tveimur sólpöllum og rúmgóðum 12,6 fm svölum við Blómvelli 21 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 162 fm þar af neðri hæðin 87,3 fm og efri hæðin 74,7 fm og bílskúr 24,7 fm, samtals 186,7 skv. fasteignaskrá.

* Tveir sólpallar og stórar svalir
* 4 svefnherbergi og sjónvarpshol sem auðveldlega hægt er að breyta í herbergi.
* Róleg gata framarlega á völlunum
* Hleðslustöð fyrir bíla
* Hiti í bílaplani
* Stór lóð fyrir aftan hús.

Nánari lýsing;
Neðri hæð:
Forstofa með skápum og flísar á gólfi,
Gestasnyrting er innaf forsofu með opnanlegum glugga.
Svefnherbergi með parket á gólfi
Stofa og borðstofa í björtu alrými með útgengt út á stóran pall sem snýr í suðurpott.
Eldhús með hvítri innréttingu, uppþvottavél, ofn í vinnuhæð. Stæði fyrir tvöfaldan ísskáp.
Þvottahús er innaf eldhúsi með góðum skápum, hvítri innréttingu með vask, stæði fyrir þvottavél og þurrkara,
Innangengt er í bílskúr frá þvottahúsi og útgengt á sólpall fyrir aftan hús.
Geymsla með hillum er fyrir framan bílskúr.
Bílskúrinn er flísalagður með hita, rafmagni, vatni, rafmagnsopnara og opnu geymslulofti. Hiti í plani að framan.

Efri hæð:
Stigi upp á efri hæð er parketlagður.
Þrjú svefnherbergi, skápar eru í hjónaherbergi.
Sjónvarpshol sem mögulegt er að breyta í herbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Hornbaðkar með nuddi, sturta,upphengt salerni, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.

-Góður sólpallur með skjólveggjum er fyrir framan hús
-Sólpallur fyrir aftan hús með mynstursteypu.
-Rafmagnsrör í báðum pöllum.

Framkvæmdir seinustu ára skv. seljanda.
2024 Þak á húsi og bílskúr málað
2024 Gluggar málaðir
2024 Mynstursteypa á sólpall bakvið húsið.
2024 Tölvutenglar um allt hús.

Frábær staðsetning í rólegri götu, innarlega á völlunum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Grunn- og leikskóla, fjölbreytt úrval verslana, Íþróttamannvirki og sundlaug eru allt í þægilægri göngufjarlægð.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / og
Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / 

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/4357ff6e-e9dc-4039-bc7b-221dd3eb2281
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
