listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Reykjavík

Íbúð – Reykjavík
Íbúð – Reykjavík - Aðalmynd
Ekki lengur í boði

Þessi auglýsing er ekki lengur virk. Við geymum hana til viðmiðunar, en upplýsingarnar gætu verið úreltar.

2 herbergja til sölu, 62 m²

Reykjavík

1 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

63.900.000 kr.

1.030.645 kr./m²

Skráð 24. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Valhöll kynnir fallega og bjarta 2ja herbergja íbúð með stórum suðurpalli í Gautlandi 5 í Fossvoginum. Íbúðin er skráð 62 fm á stærð og er hún vel skipulögð og nýtast allir fermetrar vel. Íbúðin skiptist í anddyri, baðherbergi, svefnherbergi, eldhús og stofu. Stór suðurpallur og sameiginilegur garður. Næg bílastæði. Frábær staðsetning örstutt frá helstu stofnbrautum, verslunarmiðstöðinni Grímsbæ og öllu sem þar er ásamt því að stutt er í fallegar gönguleiðir niðrí Fossvogsdal. Nánari lýsing: Anddyri: með parketi á gólfi. Svefnherbergi: með opnum fataskápum og parketi á gólfi. Baðherbergi: með baðkari með sturtu í, opnum skáp undir vask og flísum á gólfi. Eldhús: með hvítri eldhúsinnréttingu með eyju, ofni í vinnuhæð, aðstöðu fyrir uppþvottavél og parketi á gólfi. Stofa / borðstofa: samliggjandi í opnu alrými með eldúsinu með útgengi á stórum suðurpalli. Þvottahús: sameiginlegt á sömu hæð og íbúð. Hjóla- vagnageymsla: sameiginleg á sömu hæð og íbúð. Endurbætur á húsi og íbúð: 2004 - Járn á þaki endurnýjað. 2006 - Austurgafl hússins klæddur. 2012 - Þakkantur lagaður. 2020 - Hús múrviðgert og málað. 2023 - Ný innrétting að hluta í eldhúsi, ný borðplata og nýr vaskur og blöndunartæki. 2024 - Skipt um lagnagrind í stigagangi. 2025 - Stigangur málaður. Nánari upplýsingar veitir: Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 5þ Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Hvað er innifalið

Svalir
Flatarmál62 m²
Herbergi2
Svefnherbergi1
Baðherbergi1

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

63.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

274.423 kr./mán

Útborgun20 % · 12.780.000 kr.
12.780.000 kr.51.120.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla98.792.357 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar
  • Pricing

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.