Hús – Kópavogur, Hvörf, Vatnsendi

Hús til sölu, 202 m²

Kópavogur, Hvörf, Vatnsendi

4 Svefnherbergi2 Baðherbergi

169.000.000 kr.

837.048 kr./m²

Skráð 14. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Vel skipulagt og fallegt parhús á tveim hæðum með bílskúr á skemmtilegum útsýnisstað við Andarhvarf 4 í Kópavogi. Glæsilegt útsýni og gott bílaplan er framan við hús, suður-svalir og afgirt lóð. Eignin skiptist í: Forstofu, hol/gang, stofu, borðstofu, eldhús, 4 svefnherbergi, gesta og aðalbaðherbergi, þvottaherbergi, sjónvarpsherbergi, geymsla og svo er bílskúr á efri hæð. Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands: Íbúð er 201,9 fm þar af bílskúr 28,7 fm. FASTEIGNAMAT ÁRSINS 2027 ER KR. 158.450.000- Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D: Ýtið hér // Mjög vel staðsett eign og stutt í alla þjónustu. // Glæsilegt útsýni. // 4 Svefnherbergi. // Stór bílskúr // Glæsilegur garður með stórum palli og heitum potti. // Stæði fyrir 5 bíla fyrir utan. // Útiskúr. Nánari lýsing á eign: Efri hæð: Hiti í gólfum á efri hæð. Forstofa: Flísar á gólfi og með fataskápum, inngengt í innbyggðan bílskúr úr forstofu. Gestabaðherbergi: Flísar á gólfi og hluta af veggjum. Vaskur og spegill. Barnaherbergi 1: Rúmgott með flísum á gólfi og fataskáp. Eldhús: Flísar á gólfi, glæsileg innrétting með góðu skápa og borð plássi ásamt eyju, eldhúsinnrétting mjög vönduð með tækjaskápum og steinn á borði. Gert er ráð fyrir 2 földum ísskáp. Stofa/borðstofa: Flísar á gólfi, mjög rúmgóðar og bjartar með útgengi út á stórar svalir með fallegu útsýni. Bílskúrinn: Er rúmgóður með góðri lofthæð, flísar eru á gólfi og hurðaopnari. Neðri hæð: Ofnar eru á neðri hæð. Gengið er niður fallegan parketlagðan stiga niður á neðri hæð. Sjónvarpsherbergi: Parket á gólfi og útgengi út á fallega verönd. Hjónaherbergi: Parket á gólfi og með stórum fataskáp. Barnaherbergi 2: Parket á gólfi og fataskáp. Barnaherbergi 3: Parket á gólfi og fataskáp. Baðherbergið: Hiti í gólfi, flísalagt í hólf og gólf, er bæði með sturtu og hornbaðkar, vegghengt salerni, skápur, innrétting undir vask og stórum spegil. Þvottaherbergi: Flísar á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og fín vinnuaðstaða. Geymsla: Er inn af sjónvarpsherbergi. Góð aðkoma er að hellulögðu bílaplani með hitaílögnum og einnig hellulagðri stétt. Bílastæðið rúmar 5 bíla. Garðurinn er gróinn með veröndum, skjólveggjum og gróðri. Eftirsótt staðsetning í Hvörfunum Kópavogi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, ýmsa þjónustu og stutt útí fallega náttúru. Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Hvað er innifalið

Svalir
Garður
Bílskúr

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.