listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Hafnarfjörður

Íbúð – Hafnarfjörður
Íbúð – Hafnarfjörður - Aðalmynd

3 herbergja til sölu, 82 m²

Hafnarfjörður

2 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

69.000.000 kr.

838.396 kr./m²

Skráð 21. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Betri Stofan fasteignasala kynnir nýtt glæsilegt fjögurra hæða lyftuhús við Áshamar 22 í Hamranesi, Hafnarfirði. Um er að ræða tveggja, þriggja og fjögrra herbergja íbúðir þar sem hverri íbúð fylgir sér bílastæði í lokaðri bílageymslu. Kynnið ykkur lán frá skjólfestu: Þú þarft að eiga 10% -tekur 70% lán og skjólfesta á 20% Kíkið hér fyrir lánsmöguleika Bókið skoðun hjá: Aron Bjarnason viðskiptafræðingur og aðstoðarmaður fasteignasala í síma 845-8814 eða með tölvupósti Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 844-9591 eða með tölvupósti Telma Rut Frímannsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 772-3555 eða með tölvupósti Íbúðirnar skilast fullbúnar með gólfefnum, Ísskáp og uppþvottavél. Votrými skilast flísalögð. Íbúð 302: Þriggja herbergja íbúð. 82,3 fermetrar. Allur frágangur, uppbygging og orkunotkun hússins tekur mið af leiðbeinandi stigakröfum Svansins. Nánar um íbúðirnar Innréttingar frá HTH, annars vegar spónlagðar og hinsvegar með hvítu yfirborði lögðu Melamini. Eldhústæki: Allur búnaður er frá AEG. Spanhelluborð með 4 hellum, blástursofn með stáláferð, gufugleypir/eyjuháfur eftir því sem við á. Stáleldhúsvaskur með einu hólfi. Hitastýrð einnar handar blöndunartæki frá Grohe. Baðherbergi: Vegghengt salerni, speglaskápur fyrir ofan vask, sturta með flísalögðum sturtubotni. Allur búnaður er frá Grohe. Svefnherbergi: Fataskápar eru í svefnherbergjum. Geymslur fylgja öllum íbúðum. Merkt bílastæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðum. Lagnaleið fyrir mögulega rafhleðslutengingu er við hvert bílastæði. Sjá skilalýsingu: Skilalýsing Byggingaraðili húsins er Eykt ehf. Eykt ehf er traustur verktaki til fjölda ára: Sjá nánar um verktakan (www.eykt.is) Hönnun: Arkitekt: T.ark – Teiknistofan Arkitektar Burðarþol og lagnir: Teknik Verkfræðistofa Raflagnir: Voltorka Lóð: Landhönnun Kaupandi greiðir skipulagsgjald af endanlegu brunabótamati eignarinnar. Frábær staðsetning þar sem stutt er í helstu þjónustu, skóla, leiksskóla, verslun og falleg útivistarsvæði. Nánari upplýsingar veita: Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 844 9591 / Aron Bjarnason viðskiptafræðingur og aðstoðarmaður fasteignasala í síma 845-8814 eða með tölvupósti Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866-1763 eða með tölvupósti Telma Rut Frímannsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 772-3555 eða með tölvupósti Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður: 1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Hvað er innifalið

Svalir
Bílskúr
Flatarmál82.3 m²
Herbergi3
Svefnherbergi2
Baðherbergi1

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

69.000.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

296.326 kr./mán

Útborgun20 % · 13.800.000 kr.
13.800.000 kr.55.200.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla106.677.193 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.