listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Reykjavík

Íbúð – Reykjavík
Íbúð – Reykjavík - Aðalmynd

3 herbergja til sölu, 83 m²

Reykjavík

2 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

82.900.000 kr.

1.002.418 kr./m²

Skráð 13. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Betri Stofan fasteignasala BORGARTÚN 30 og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - kynnir: SÝNUM DAGLEGA BORGARTÚN 24 Glæsilegar nýjar íbúðir í vel staðsettu fjölbýlishúsi í Borgartúni í Reykjavík. Íbúðir afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, innbyggðum eldhústækjum og gólfefnum. ÍBÚÐ 501 ER 82,7 FM ÍBÚÐ Á 5. HÆÐ - Í húsinu er golfhermir www.golf24.is - Hárgreiðslustofa og ýmislegt fleira. Frítt er að leggja, 1 stæði á íbúð. Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 501 í Borgartúni 24a, íbúð merkt 01-0501, F2518378. 3ja herbergja íbúð og rúmgóðum svölum sem snúa út á Nóatúni, til suðausturs. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 82,7 fM. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla fylgir íbúðinni sem er 12,5 fm. Svalir snúa í suð-austur eru 11,1 fm og eru ekki taldar með í heildar fermetratölu. Borgartún 24 er glæsilegt 7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum á 2.-7 hæð og verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð í einu helsta viðskiptahverfi borgarinnar. Í Borgartúni er blönduð byggð íbúða, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við stóra vinnustaði og alla helstu þjónustu, í göngufæri frá miðbænum og Laugardalnum. Byggingin er byggð utan um sameiginlegan inngarð. Á 4. hæð er einnig sameiginlegur þakgarður, á 6. hæð er sameiginlegur þakgarður og á 7. hæð eru sameiginlegar þaksvalir. Frágangur íbúða að innan: Vandaðar þýskar innréttingar frá Nobilia í eldhúsi, baði og herbergjum (söluaðili er GKS). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki koma frá Siemens, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Hreinlætistæki frá Grohe. Frágangur utanhúss: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldsléttri álklæðningu eða sambærilegu efni. Timbur/ál gluggar. Lóð og bílastæði: Sameiginlegur inngarður er á 2. hæð og sameiginlegar þaksvalir eru á 4. hæð. Í bílakjallara eru 39 bílastæði, þar af 4 fyrir hreyfihamlaða, og 30 bílastæði eru á lóð. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er einnig á plani við aðalinngang. Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð. Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati. Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður: 1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Hvað er innifalið

Svalir
Lyfta
Flatarmál82.7 m²
Herbergi3
Svefnherbergi2
Baðherbergi1
UndirgerðÍbúð

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

82.900.000 kr.

Fasteignaleitin

82.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

356.020 kr./mán

Útborgun20 % · 16.580.000 kr.
16.580.000 kr.66.320.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla128.167.236 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar
  • Pricing

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.