listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Reykjavík

Íbúð – Reykjavík
Íbúð – Reykjavík - Aðalmynd

4 herbergja til sölu, 64 m²

Reykjavík

3 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

57.990.000 kr.

901.866 kr./m²

Skráð 22. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna: Fallega fjögurra herbergja íbúð í Jöfursbás 11c, Gufuneshverfi í Grafarvogi. Björt og falleg íbúð á 3ju hæð með sérinngangi og svölum í þessu lyftuhúsi sem byggt var 2021. Birt stærð skv. fasteignaskrá er 64,3 m². Hér er um að ræða frábær fyrstu kaup. Vel skipulögð íbúð með þrem svefnherbergjum. Lýsing íbúðar: Forstofa er með flísum á gólfi, góðum fataskáp og hengi. Alrými Stofa, borðstofa og eldhús eru í björtu huggulegu rými með parket á gólfi. Útgengt á góðar svalir úr stofu. Í eldhúsi er góð innrétting með ofni, helluborði og viftu. Tengi fyrir uppþvottavél. Svefnherbergi 1 er með góðum skáp og parketi á gólfi. Tvær rennihurðir eru inn í þetta herbergi. Svefnherbergi 2 og 3 eru einnig með góðum skápum og parketi á gólfum. Baðherbergi með vaskinnréttingu,walk-in sturtu og upphengdu salerni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Nýtt parket er á öllum rýmum íbúðarinnar, nema á baðherbergi og forstofu. Sameign og fleira: Í sameign hússins er vinnuaðstaða/veislusalur sem íbúar geta nýtt sér. Einnig þvottahús og póstaðstaða. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í sérhúsi á lóðinni, sem er stór og fjöskylduvæn. Íbúar hafa aðgang og afnot af matjurtagarði sem er nærri húsinu og er í eigu Reykjavíkurborgar. --- Um Þorpið vistfélag í Gufunesi: Þorpið vistfélag er á sjávarlóð í þessu nýja hverfi í Gufunesi. Frá húsinu er glæsileg sjávarsýn og útsýni yfir Geldinganes og Viðey. Göngu og hjólastígar verða meðfram ströndinni sem tengjast öðrum íbúðarsvæðum í Grafarvogi. Húsin mynda garðrými fyrir skjólgott torg, leiksvæði og grasfleti. Tekið var tillit til sólarátta við skipulagningu byggðarinnar þannig að garðrýmin eru í góðu skjóli. Við innganginn er sólríkt miðlægt torg fyrir framan sameigileg rými þar sem er veislusalur/vinnurými, sameiginlegt þvottahús og pósthús/búr fyrir aðsendan póst og vörur. Við torgið sjálft er leiksvæði fyrir yngri börn, en sparkvöllur og boltasvæði í garði á móti sjó. Á torginu er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Matjurtagarðar í eigu Reykjavíkurborgar eru til afnota fyrir íbúa til ræktunar kjósi þeir það. Deiliskipulag fyrir Gufunes, nýjasta hverfi Reykjavíkur, byggir á verðlaunatillögu hollensku arkitektastofunnar jvantspijker + Felixx sem árið 2016 hreppti fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um Gufunessvæðið. Í vinningstillögunni segir að Gufunes eigi að verða eins konar ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa. Tillagan nýtir óhefluð umhverfisgæði og staðaranda sem grunn að samfélagi þar sem tækifæri, hagkvæmni og upplifun verða í forgrunni. Í Gufunesi er verið að byggja upp einstakt hverfi í borginni. Þar er fyrirhuguð blönduð byggð. Íbúðir og smærri atvinnurekstur. Lögð verður áhersla á afþreyingu og útivist í þessu manngerða og náttúrulega landslagi með fallegri fjallasýn við sjávarsíðuna. Nánari upplýsingar veitir: Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali Fasteignasalan Grafarvogi S: 771-5600
Flatarmál64.3 m²
Herbergi4
Svefnherbergi3
Baðherbergi1

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

57.990.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

249.042 kr./mán

Útborgun20 % · 11.598.000 kr.
11.598.000 kr.46.392.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla89.655.223 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.