# fjolb, Jöfursbás 11C, Reykjavík

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/488297bb-cfd5-49fc-87f4-216d449c321f

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** active
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 57,990,000 ISK
- **Location:** Reykjavík, IS
- **Floor area:** 64.3 m²
- **Bedrooms:** 3
- **Published:** 2026-10-03T07:52:40.806Z
- **Last updated:** 2026-10-10T04:39:53.362Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna:
Fallega fjögurra herbergja íbúð í Jöfursbás 11c, Gufuneshverfi í Grafarvogi.

Björt og falleg íbúð á 3ju hæð með sérinngangi og svölum í þessu lyftuhúsi sem byggt var 2021.
Birt stærð skv. fasteignaskrá er 64,3 m².

Hér er um að ræða frábær fyrstu kaup. Vel skipulögð íbúð með þrem svefnherbergjum.

Lýsing íbúðar:
Forstofa er með flísum á gólfi, góðum fataskáp og hengi.
Alrými Stofa, borðstofa og eldhús eru í björtu huggulegu rými með parket á gólfi. Útgengt á góðar svalir úr stofu.
Í eldhúsi er góð innrétting með ofni, helluborði og viftu. Tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergi 1 er með góðum skáp og parketi á gólfi. Tvær rennihurðir eru inn í þetta herbergi.
Svefnherbergi 2 og 3 eru einnig með góðum skápum og parketi á gólfum.
Baðherbergi með vaskinnréttingu,walk-in sturtu og upphengdu salerni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Nýtt parket er á öllum rýmum íbúðarinnar, nema á baðherbergi og forstofu.

Sameign og fleira:
Í sameign hússins er vinnuaðstaða/veislusalur sem íbúar geta nýtt sér. Einnig þvottahús og póstaðstaða.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í sérhúsi á lóðinni, sem er stór og fjöskylduvæn.
Íbúar hafa aðgang og afnot af matjurtagarði sem er nærri húsinu og er í eigu Reykjavíkurborgar.

---

Um Þorpið vistfélag í Gufunesi:
Þorpið vistfélag er á sjávarlóð í þessu nýja hverfi í Gufunesi. Frá húsinu er glæsileg sjávarsýn og útsýni yfir Geldinganes og Viðey. Göngu og hjólastígar verða meðfram ströndinni sem tengjast öðrum íbúðarsvæðum í Grafarvogi. Húsin mynda garðrými fyrir skjólgott torg, leiksvæði og grasfleti. Tekið var tillit til sólarátta við skipulagningu byggðarinnar þannig að garðrýmin eru í góðu skjóli. Við innganginn er sólríkt miðlægt torg fyrir framan sameigileg rými þar sem er veislusalur/vinnurými, sameiginlegt þvottahús og pósthús/búr fyrir aðsendan póst og vörur. Við torgið sjálft er leiksvæði fyrir yngri börn, en sparkvöllur og boltasvæði í garði á móti sjó. Á torginu er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Matjurtagarðar í eigu Reykjavíkurborgar eru til afnota fyrir íbúa til ræktunar kjósi þeir það.

Deiliskipulag fyrir Gufunes, nýjasta hverfi Reykjavíkur, byggir á verðlaunatillögu hollensku arkitektastofunnar jvantspijker + Felixx sem árið 2016 hreppti fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um Gufunessvæðið. Í vinningstillögunni segir að Gufunes eigi að verða eins konar ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa. Tillagan nýtir óhefluð umhverfisgæði og staðaranda sem grunn að samfélagi þar sem tækifæri, hagkvæmni og upplifun verða í forgrunni.

Í Gufunesi er verið að byggja upp einstakt hverfi í borginni. Þar er fyrirhuguð blönduð byggð. Íbúðir og smærri atvinnurekstur. Lögð verður áhersla á afþreyingu og útivist í þessu manngerða og náttúrulega landslagi með fallegri fjallasýn við sjávarsíðuna.

Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/488297bb-cfd5-49fc-87f4-216d449c321f
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
