# haedir, Barmahlíð 6, Reykjavík

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/4f8f7bf9-08f2-4dfa-bb3e-c3fefdbfbfb3

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** active
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 57,900,000 ISK
- **Location:** Reykjavík, IS
- **Floor area:** 72.5 m²
- **Bedrooms:** 2
- **Published:** 2026-11-06T16:20:15.847Z
- **Last updated:** 2026-11-08T22:45:01.482Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Valhöll og Vilborg Gunnarsdóttir, lgfs kynna nýtt á einkasölu:
FALLEG OG BJÖRT 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ SÉRINNGANG Í HLÍÐUNUM.
ÍBÚÐIN ER 72,5 FM Á VINSÆLUM STAÐ Í HJARTA REYKJAVÍKUR.
Gengið er inn um sérinngang á austurgafli hússins.
Skipulag: Forstofa, hol, tvö svefnherbergi, rúmgott eldhús, stofa/borðstofa og baðherbergi. Þá er þvottahús í sameign innangengt frá íbúð.
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð með gólfhita.Baðherbergi inn af forstofu.
Hol er með parketi á gólfi og góðum fataskáp. Holið tengir saman vistarverur hússins.
Eldhús er mjög rúmgott með vandaðri innréttingu, parketlagt með glugga til suðurs.
Stofa/borðstofa er með parketi á gólfi, björt með gluggum til suðurs.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og mjög rúmgóðum og vönduðum fataskápum.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi er inn af forstofu með sturtuklefa, flísalagt með góðri innréttingu og handklæðaofni. Hiti er í gólfi.
Geymsla er innan íbúðar með hillum og parketi á gólfi.
Þvottahús er í sameign þar sem hver íbúð er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Innangengt í þvottahús úr sameign.
Íbúðin er í kjallara hússins með sér inngangi en í húsinu eru þrjár íbúðir.
Sameiginlegur geymsluskúr í garði.
Stór gróinn suðurgarður.
Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarsyni og Gísla Halldórssyni.

Upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 / 

Að sögn seljenda hafa eftirfarandi endurbætur verið gerðar innan íbúðar:
2020: Ný innrétting á baði

2023:Nýtt raflagnaefni í íbúð.Sjónvarpslagnir faldar í vegg.

Rafmagnstafla endurnýjuð.

2025 :Múrviðgerðir á vegg við sérinngang.Nýtt blöndunartæki í baðherbergisvaski.

Um viðhald hússins að sögn seljenda: (upplýsingar fengnar frá fyrri eiganda)
2019 Þak endurnýjað, en þá var skipt um þakjárn og þakpappa.

Þakrennur og snjóvarnir á þaki endurnýjaðar.

Skólplagnir fóðraðar 2019.

Gler í stofu og hjónaherbergi endurnýjað.

Um er að ræða skemmtilega og bjarta íbúð á vinsælum stað í Hlíðunum.
Stutt í verslanir og þjónustu en Kringlan er í göngufæri sem og miðbærinn.
Leik- grunn- og menntaskólar í nágrenninu.
Frábær fyrstu kaup og góðir útleigumöguleikar.

Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir, sími 891 8660 / 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/4f8f7bf9-08f2-4dfa-bb3e-c3fefdbfbfb3
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
