Íbúð – Reykjavík

3 herbergja til sölu, 88 m²

Reykjavík

2 Svefnherbergi1 Baðherbergi

88.900.000 kr.

1.016.000 kr./m²

Skráð 19. ágú. 2026

Um þessa auglýsingu

Betri Stofan fasteignasala og Jason Kristinn sími 7751515 kynna: Nýjar glæsilegar nýjar íbúðir við Breiðhöfða 15-19. Breiðhöfði 15, íbúð 302. Hverfið er skipulagt með það að leiðarljósi að öll helsta þjónusta sé í göngufæri. Þá tengist það helstu samgönguæðum borgarinnar. Stutt er í græn svæði, göngu- og hjólastíga auk þess sem almenningssamgöngur verða öflugar með fyrirhugaðri borgarlínu. Borgarhöfðinn býður upp á líflegt borgarumhverfi þar sem þægindi, gæði og framtíðarsýn fara saman. Sjá nánar heimasíðu vekefnisins HÉR https://hofdinn.is Nánari lýsing: Breiðhöfði 15, Íbúð 302 er góð 3ja herbergja íbúð á 3ju hæð með suður svölum. Eignin er í heild skráð 87,5 fm þar af 12,3 fm geymsla. Íbúðin skiptist í 2 svefnherbergi, rúmgott alrými sem telur stofu, borðstofu og eldhús, baðherbergi með walk-in sturtu. Þvottaaðstaða inná baðherbergi. Eignin skilast fullbúin með gólfefnum skv. skilalýsingu seljanda. Afhending - haust 2026. Skuggi byggir 50 nýjar íbúðir þar sem gæði og góður frágángur skína í gegn. Allar nánari upplýsingar, teikningar, og skilalýsingu er hægt að nálgast hjá sölumönnum Betri Stofunnar Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður: 1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Hvað er innifalið

Svalir

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.