Björt og falleg 58,7 fm., 2ja herbergja íbúð á 2.hæð. Sér inngangur í átta íbúða húsi. Gullfallegt útsýni yfir Laugarvatn er frá íbúðinni.
Gengið í forstofu um sér inngang, fataskápur er nær að lofti.
Hol miðsvæðis í eigninni.
Eitt gott svefnherbergi með skápum og tveimur gluggum.
Baðherbergi með sturtu og innréttingu og tengi fyrir þvottavél.
Stofa og eldhús eru í samliggjandi rými, gengt út á sólríkar suðursvalir úr stofunni með útsýni yfir Laugarvatn.
Geymsla er innan íbúðar,
Góðar og sólríkar suður svalir með viðarflísum á svalargólfi.
**Getur verið leigð út með þeim húsgögnum sem sjást á myndum, ísskáp og þvottavél.**
Sameiginlegt þvottahús/þurrkherbergi sem og hjóla og vagnageymsla eru á 1. hæð hússins.
Öll helsta grunnþjónusta og fjölmargir afþreyringarmöguleikar eru til staðar á Laugarvatni:
Verslun, grunnskóli, leikskóli, menntaskóli, kaffihús og veitingar, sundlaug, íþróttahús, Fontana spa og ýmsir aðrir afþreyingarmöguleikar.