# fjolb, Laugateigur 17, Reykjavík

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/5c4c41e1-c7a2-45dc-b27f-e7d2b83c978c

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** removed
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 69,900,000 ISK
- **Location:** Teigar, Laugardalur, Reykjavík, IS
- **Floor area:** 91.6 m²
- **Bedrooms:** 0
- **Published:** 2026-07-25T00:50:34.712Z
- **Last updated:** 2026-08-15T01:49:00.437Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna, Laugateig 17 , íbúð 0001, fnr. 201-9173

Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 91,6 fm. Skráð byggingarár hússins er 1948. Húsið er tvær hæðir og kjallari og er íbúðin í kjallara hússins. Sjá má skipulag íbúðar á teikningu sem er vistuð þar sem ljósmyndir eru af eigninni. Íbúðin hefur verið endurnýjuð mikið á síðustu árum og skipulagi breytt.

FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

Nánari lýsing:

Aðkoma: Hellulagt niður að tröppum sem liggja að inngangi í íbúðina.

Forstofa: Parket á gólfi. Geymsla er við hliðina á forstofu.

Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Gluggar á tvo vegu.

Eldhús: Parket á gólfi. Brún innréttting. Bakstursofn í vinnuhæð. Helluborð með viftu yfir.

Svefnherbergi: Eru tvö og er parket á gólfum þeirra beggja.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja við votrými. Baðkar með sturtutæki. Upphengt salerni. Innrétting með handlaug og efri skápum. Tengi fyrir þvottavél er í rýminu. Gluggi er á baðherberginu.

Geymsla: Geymsla er vinstra megin við inngang í íbúðina.

Laugateigur 17 er falleg kjallaraíbúð vel staðsett í Laugardalnum. Skv upplýsingum frá seljanda var húsið sjálft steinað að utan fyrir um 10 árum. Þá var skorsteinn fjarlægður, nýtt járn sett á þak og þakglugga komið fyrir, fyrir um 5 árum. Skólp og dren einnig endurnýjað í tengslum við breytingar á inngangi íbúðar. Sérafnotareitur er framan við inngang. Skipta þarf einhverjum gluggum út í íbúðinni.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s: 861-7507 eða á 

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/5c4c41e1-c7a2-45dc-b27f-e7d2b83c978c
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
