listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Hús – Selfoss

Hús – Selfoss
Hús – Selfoss - Aðalmynd

Hús til sölu, 97 m²

Selfoss

3 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

68.900.000 kr.

710.309 kr./m²

Skráð 7. okt. 2026

Um þessa auglýsingu

Fasteignasalan Heimaland kynnir, Hamravík 7 á Selfossi Vel skipulagt og fallegt raðhús í Jórvíkurhverfinu á Selfossi. Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu báruáli og Stac Bond ál klæðningu í bland, bárujárn er á þaki. Heildarstærð eignarinnar er 97m2 og skiptist hún í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi og alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Lóðin er þökulögð og mulningur er í innkeyrslu. Gengið er inn í flísalagða forstofu með fataskápum, inn af forstofu er alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu en úr stofu er útgengt inn á baklóð íbúðarinnar sem snýr á móti suðri og suðvestri. Alrýmið er með harðparket á gólfum og eldhúsinnrétting er rúmgóð með helluborði, ofni, innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni öll rúmgóð með harðparketi á gólfum og tvo svefnherbergi eru með fataskápum. Baðherbergið er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum við sturtu og baðinnréttingu, upphengt salerni og línskápur. Þvottahús er með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í þægilegri vinnuhæð, gólf er flísalagt. Hér er um að ræða vel skipulagða snyrtilega eign sem vert er að skoða nánar. Allar nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati. 2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum. 3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar. 5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. www.heimaland.is, Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Hvað er innifalið

Svalir
Garður
Íbúðarflatarmál97 m²
Svefnherbergi3
Baðherbergi1
Herbergi4
Byggingarár2024

Staðsetning

Kort ekki tiltækt

Þessi auglýsing inniheldur ekki nákvæm hnit.

Auglýst á

MBL Fasteignir

68.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

295.896 kr./mán

Útborgun20 % · 13.780.000 kr.
13.780.000 kr.55.120.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla106.522.588 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.