listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Reykjavík

Íbúð – Reykjavík
Íbúð – Reykjavík - Aðalmynd
Ekki lengur í boði

Þessi auglýsing er ekki lengur virk. Við geymum hana til viðmiðunar, en upplýsingarnar gætu verið úreltar.

2 herbergja til sölu, 51 m²

Reykjavík

1 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

57.900.000 kr.

1.135.294 kr./m²

Skráð 24. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Jason Kristinn Ólafsson og Betri Stofan fasteignasala kynnir: Laugaveg 145. Einstaklega vönduð og falleg 2ja herbergja íbúð á efstu hæð. Merkt: 0402 á 4. hæð í lyftuhúsi. Íbúð aðeins 6 ára gömul. Árið 2020 var húsið stækkað og er þessi hluti í nýja hlutanum af húsinu þegar lyftu var bætt við húsið. Innra skipulag. Í íbúðinni er alrými, þ.e. stofa, borðstofa og eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi í kjallara. Hurðir og innréttingar eru hvítar. Íbúðin er í raun rúmlega 54 fermetrar að grunnfleti, en skráð 41 fm. Íbúðin: Forstofa: Forstofa er með fataskáp og parket á gólfi. Eldhús: Innrétting er frá HTH Ormsson. Tæki eru frá Electrolux eða sambærilegt. Parket á gólfi. Stofa / borðstofa: Er opin við eldhús og útgengi á svalir til suðurs. Parket á gólfi. Svefnherbergi: Innangengur úr alrými. Parket á gólfi. Nýbúið er að setja þakglugga. Baðherbergi: Baðinnrétting frá HTH Ormsson. Hreinlætistæki frá Grohe eða sambærilegt. Salerni er upphengt. Gólf flísalögð ásamt hluta baðherbergisveggja. Gólfflísar 20x20 Carnaby Street Beige frá Álfaborg og veggflísar verða 10x20 Carnival of Venezia glans frá Álfaborg. Þvottahús: Er sameiginlegt í kjallara hússins. Geymsla: Sérgeymsla er í sameign hússins merkt 0009. Húsið: Hluti hússins er endurgerð á eldra húsi þar sem innra skipulag hússins er breytt og hæð bætt ofan á og hinn hluti hússins er viðbygging úr forsteyptum samlokueiningum. Nýlegt stigahús með pallalyftu og aðalinngang á 1. hæð og bakinngang úr garði inn í kjallara og hjólageymslu sameinar báða hluta hússins. Lítill inngarður er við baklóð hússins þar sem aðgengi er í kjallara, hjólageymslu og stigahús ásamt sorptunnuskýlum utandyra. Aðalinngangur er í nýrri viðbyggingu við austurhlið hússins. Húsið er ýmist steinað og/eða filtað og málað að utan. Umhverfið: Laugavegur 145 er miðsvæðis og í göngufæri við alla helstu þjónustu og þá menningu sem miðbær Reykjavíkur býður uppá. Um 100m eru niður á Hlemmtorg þar sem fyrirhuguð er mikil umbylting í þeim tilgangi að stækka miðbæinn og auka menningu og afþreyingu á svæðinu. Sú breyting mun minnka almenna umferð bíla og strætisvagna við Laugaveg 145 en með fyrirhugaðri miðstöð borgarlínu mun þetta svæði verða einn helsti tengipunktur samgangna á höfuðborgarsvæðinu í framtíðinni. Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 löggiltur fasteignasali. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður: 1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Hvað er innifalið

Svalir
Lyfta
Flatarmál51 m²
Herbergi2
Svefnherbergi1
Baðherbergi1

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

57.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

248.656 kr./mán

Útborgun20 % · 11.580.000 kr.
11.580.000 kr.46.320.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla89.516.079 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar
  • Pricing

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.