# fjolb, Bláhamrar 2, Reykjavík

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/6ab5fcf4-e613-4d81-a021-8d172c890e22

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** active
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 55,900,000 ISK
- **Location:** Reykjavík, IS
- **Floor area:** 62.7 m²
- **Bedrooms:** 1
- **Published:** 2026-10-05T14:48:29.216Z
- **Last updated:** 2026-10-06T09:13:56.785Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Borg fasteignasala kynnir til sölu fallega 2ja herbergja á 6. hæð efstu í lyftuhúsi við Bláhamra í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í alrými, hjónaherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla er í sameign á hæðinni.

Nánari lýsing: Komið er inn á forstofu með harðparketi og fataskápum með útgangi út á svalir. Eldhús og stofa mynda alrými með harðparketi á gólfum. Eldhús er með með viðarinnréttingu, efri og neðri skápum. Svefnherbergi er með harðparketi og fataskápum. Baðherbergi er flísalagt með innréttingu og sturtuklefa. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi. Sérgeymsla er á hæðinni.

Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 hjá BORG fasteignasölu.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/6ab5fcf4-e613-4d81-a021-8d172c890e22
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
