# einb, Hafnargata 14, Siglufjörður

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/6f894cd1-e34d-4382-a7e9-831ea06b7bc0

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** active
- **Transaction:** sale
- **Category:** house
- **Asking price:** 39,900,000 ISK
- **Location:** Siglufjörður, IS
- **Floor area:** 102.2 m²
- **Bedrooms:** 3
- **Published:** 2026-10-03T07:51:47.545Z
- **Last updated:** 2026-10-13T05:25:57.504Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Hafnargata 14, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0287 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Hafnargata 14 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0287, birt stærð 102.2 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur .

Um er að ræða einbýlishús með frábæru útsýni yfir fjallahringinn, timburpalli og garðskúr. Eignin samanstendur af forstofu á báðum hæðum, eldhúsi, stofu, borðstofu, baðherbergi, þremur svefnherbergjum, geymslu og háalofti. Byggður var timburpallur aftan við eignina með 9fm garðskúr. Einnig var útbúið bílastæði við hlið eignarinnar með steyptum veggjum og plani.

Neðri hæð samanstendur af forstofu, þremur svefnherbergjum og baðherbergi.

Forstofa: er með parket á gólfi.
Svefnherbergi: eru þrjú í heildina misstór með parket/dúk á gólfi.
Baðherbergi: er með frístandandi sturtuklefa, vask, innréttingu, salerni og aðstöðu fyrir þvottavél.

Efri hæð samanstendur af forstofu, eldhúsi, borðstofu, stofu, geymslu, háalofti og aðgengi út á pall.

Forstofa: er með dúk á gólfi.
Eldhús: er með hvítri innréttingu og dúk á gólfi. Inn af eldhúsi er síðan rúmgóður borðkrókur með frábæru útsýni yfir fjörðinn.
Stofa-borðstofa: liggja saman í rúmgóðu rými með parket á gólfi. Mikið útsýni er úr stofu.
Geymsla: er með ágætis hilluplássi og aðgengi upp á háaloft. Dúkur er á gólfi.
Pallur: er aftan við eignina með timburskjólveggjum og 9fm garðskúr.
Garður: er grasilagður og umlykur eignina.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/6f894cd1-e34d-4382-a7e9-831ea06b7bc0
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
