Íbúð – Hafnarfjörður

3 herbergja til sölu, 124 m²

Hafnarfjörður

1 Baðherbergi

129.900.000 kr.

1.044.212 kr./m²

Skráð 18. ágú. 2026

Um þessa auglýsingu

Virkilega falleg 3ja herbergja útsýnisíbúð á 2. hæð í góðu lyftuhúsi ásamt stæði í bílakjallara við Herjólfsgötu 36 í Hafnarfirði. Laus strax. Eignin skiptist þannig að íbúðin er 110,9 fm og geymsla 13,5 fm, alls 124,4 fm skv. Fasteignaskrá HMS. Tvennar svalir. Frábært útsýni yfir fjörðinn af yfirbyggðum svölum. Íbúðin er fyrir 60 ára og eldri. Skoðaðu 3 D myndir hér Nánari lýsing: Parket er á öllum gólfum íbúðarinnar nema flísar á þvottahúsi, baðherbergi og yfirbyggðum svölum. Forstofa og hol með skápum. Hjónaherbergi með góðum skápum. Eitt minna herbergi. Eldhús, stofa og borðstofa í björtu alrými með útgengt á tvennar svalir, einstakt útsýni til sjávar af báðum svölum. Sést hefur til hvala, sela, fugla og töluvert mannlíf er við sjávarsíðuna. Eldhús með viðarinnréttingu, ofn í vinnuhæð, eldunareyja með háf yfir, góður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, handklæðaofn, skápur og góð opin sturta án uppstigs, Þvottahús með vaski, borði, uppdraganlegum þvottasnúrum og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Stór sérgeymsla í kjallara. Sér bílastæði í upphituðum bílakjallara merkt 25. Góð aðstaða til að þrífa bíla. Sameiginleg hjólageymsla. Sameignin er mjög snyrtileg og vel við haldið. Þrif á sameign eru keypt. Í sameign er einnig mjög góð félagsaðstaða, hentug fyrir kaffisamsæti, þar er líkamsræktartæki, billiardborð og bókasafn. Íbúar hafa verið duglegir að hittast í félagsaðstöðunni, fá sér kaffi saman og spjalla auk þess sem virkur gönguhópur er í húsinu. Húsfélagið á íbúð sem er í útleigu og aflar tekna í viðhaldssjóð. *Sameign snyrtileg og í húsinu er gott samfélag. *Húsið er að mestu klætt að utan. *Sameiginleg bílastæði fyrir framan húsið. Einstök eign með frábæru útsýni sem vert er að skoða á þessum vinsæla stað í hjarta Hafnarfjarðar þar sem stutt er í kaffihús, veitinghús, söfn, verslanir og aðra þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason lögg.fast. á Höfða Gsm 895 3000.-

Hvað er innifalið

Svalir
Lyfta
Bílskúr

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.