# fjolb, Herjólfsgata 36, Hafnarfjörður

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/72ebd75d-3ddc-4064-80df-e9e3ca4b457e

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** active
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 129,900,000 ISK
- **Location:** Hafnarfjörður, IS
- **Floor area:** 124.4 m²
- **Bedrooms:** 0
- **Published:** 2026-08-18T12:28:12.845Z
- **Last updated:** 2026-08-22T09:26:23.259Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Virkilega falleg 3ja herbergja útsýnisíbúð á 2. hæð í góðu lyftuhúsi ásamt stæði í bílakjallara við Herjólfsgötu 36 í Hafnarfirði. Laus strax. Eignin skiptist þannig að íbúðin er 110,9 fm og geymsla 13,5 fm, alls 124,4 fm skv. Fasteignaskrá HMS. Tvennar svalir. Frábært útsýni yfir fjörðinn af yfirbyggðum svölum.
Íbúðin er fyrir 60 ára og eldri.

Skoðaðu 3 D myndir hér

Nánari lýsing:
Parket er á öllum gólfum íbúðarinnar nema flísar á þvottahúsi, baðherbergi og yfirbyggðum svölum.
Forstofa og hol með skápum.
Hjónaherbergi með góðum skápum.
Eitt minna herbergi.
Eldhús, stofa og borðstofa í björtu alrými með útgengt á
tvennar svalir, einstakt útsýni til sjávar af báðum svölum. Sést hefur til hvala, sela, fugla og töluvert mannlíf er við sjávarsíðuna.
Eldhús með viðarinnréttingu, ofn í vinnuhæð, eldunareyja með háf yfir, góður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, handklæðaofn, skápur og góð opin sturta án uppstigs,
Þvottahús með vaski, borði, uppdraganlegum þvottasnúrum og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Stór sérgeymsla í kjallara.
Sér bílastæði í upphituðum bílakjallara merkt 25. Góð aðstaða til að þrífa bíla.
Sameiginleg hjólageymsla. Sameignin er mjög snyrtileg og vel við haldið. Þrif á sameign eru keypt.
Í sameign er einnig mjög góð félagsaðstaða, hentug
fyrir kaffisamsæti, þar er líkamsræktartæki, billiardborð og bókasafn.
Íbúar hafa verið duglegir að hittast í félagsaðstöðunni, fá sér kaffi saman og spjalla auk þess sem virkur gönguhópur er í húsinu.
Húsfélagið á íbúð sem er í útleigu og aflar tekna í viðhaldssjóð.
*Sameign snyrtileg og í húsinu er gott samfélag.
*Húsið er að mestu klætt að utan.
*Sameiginleg bílastæði fyrir framan húsið.

Einstök eign með frábæru útsýni sem vert er að skoða á þessum
vinsæla stað í hjarta Hafnarfjarðar þar sem stutt er í kaffihús,
veitinghús, söfn, verslanir og aðra þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason lögg.fast. á Höfða Gsm 895 3000.-

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/72ebd75d-3ddc-4064-80df-e9e3ca4b457e
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
