# atv, Fiskislóð 45, Reykjavík

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/7a80652c-e08d-4938-bb90-e8476c762cd0

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** active
- **Transaction:** sale
- **Category:** commercial
- **Asking price:** 69,900,000 ISK
- **Location:** Reykjavík, IS
- **Floor area:** 110 m²
- **Published:** 2026-08-10T12:38:30.154Z
- **Last updated:** 2026-08-13T02:57:33.117Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu: Einstakt „Loft“ á Granda – Mikil lofthæð, falleg og björt alrými, stórir og bjartir gluggar sem hleypa inn góðri dagsbirtu með góðu útsýni. Eignin er vel staðsett á Grandanum til þess að njóta allrar þeirrar skemmtilegu uppbyggingar sem er að eiga sér stað, fjöldi veitingastaða, og verslana í göngufæri ásamt mikilli nálægð við sjávarsíðuna með fjölda gönguleiða.

Nánari lýsing:
Komið er inn um snyrtilegan sameiginlegan inngang á jarðhæð og þaðan upp stiga í eignina.
Þegar inn er komið blasir við stórt, opið og einstaklega bjart alrými með mikilli lofthæð sem gefur eigninni sérstakt yfirbragð, parket er á gólfi.
Eldhús er opið við alrýmið, þar er falleg hvít innrétting með eyju sem hægt er að sitja við.
Milliloft er bjart með fallegri yfirsýni yfir alrýmið. Parket á gólfi, opnanlegur þakgluggi veitir góða birtu og loftun. Auðvelt væri að útbúa þar eitt eða fleiri herbergi / rými eða nýta sem skrifstofu, vinnustofu, fundarherbergi. Milliloftið er óskráð og telur um 25 fm. Skráð stærð eignarinnar með millilofti er um 110 fm.
Herbergi með góðum gluggum, parket á gólfi, mikilli lofthæð sem býður upp á fjölbreytta nýtingu.
Baðherbergi er flísalagt og fallegt með vegghengdu salerni, sturtu og hvítri innréttingu, tengi er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Húsið er klætt að utan með áli og því viðhaldslétt. Í húsinu er fullkomið sprinkler-brunavarnarkerfi og brunavarnir hafa verið yfirfarnar af slökkviliði.
Húsfélagið er jafnframt með samning um brunavarnafulltrúa. Ný eignaskiptayfirlýsing hefur verið gerð fyrir húsið en á eftir að þinglýsa henni.
Næg bílastæði eru við húsið.

Grandi hefur á fáum árum þróast í eitt vinsælasta hverfi Reykjavíkur. Í næsta nágrenni eru vinsæl kaffihús, veitingastaðir, sérverslanir, listasöfn, þjónusta og fallegar gönguleiðir við sjávarsíðuna. Miðbær Reykjavíkur er í örfárra mínútna fjarlægð.

Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali í síma 899-1178 eða 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/7a80652c-e08d-4938-bb90-e8476c762cd0
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
