# radpar, Selbraut 2, Seltjarnarnes

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/896e4846-10b9-47b5-b4b2-e2fc2e254ed6

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** removed
- **Transaction:** sale
- **Category:** house
- **Asking price:** 217,900,000 ISK
- **Location:** Seltjarnarnes, IS
- **Floor area:** 266.9000015258789 m²
- **Bedrooms:** 5
- **Published:** 2026-08-10T12:40:15.823Z
- **Last updated:** 2026-11-07T01:49:02.116Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Glæsilegt og mikið endurnýjað endaraðhús á Selbraut 2, Seltjarnarnesi, byggt 1979 og endurhannað af innanhússarkitekt Valgerði Sveinsdóttur árið 2005. Eignin er 266,9 m² að stærð og skiptist í tvær hæðir auk bílskúrs og garðskála.

- Skoðaðu eignina í 3D hér (með og án húsgagna)
- Fasteignamat 2027 - 205.500.000 kr.
- Falleg arinstofa
- 70 m² þaksvalir
- Tvöfaldur bílskúr og næg bílastæði
- Eign sem vandað hefur verið við endurbætur

Viðhald:
Við endurnýjunina var húsið tekið í gegn frá grunni, allar innréttingar endurnýjaðar, baðherbergi uppfærð, loft endurgerð, vatns- og raflagnir endurnýjaðar, gólfhiti lagður á neðri hæð og miðstöðvarlagnir endurnýjaðar á efri hæð. Stigi var einnig færður og endurgerður, sem gefur eigninni nútímalegt og opið yfirbragð. Garðskáli endurnýjaður 2007. Bílskúrshurðir endurnýjaðar fyrir 10 árum. Þakpappi bræddur ca 2007.

Húsið býður upp á afar björt og rúmgóð alrými með mikilli lofthæð. Efri hæðin hýsir svefnherbergin og annað baðherbergi, ásamt opnu sjónvarpsholi. Alls eru 2 baðherbergi og 4 svefnherbergi, en hægt að hafa svefnherbergin 6 með lítilli fyrirhöfn, sem gerir húsið tilvalið fyrir stórar fjölskyldur eða þær sem þurfa mikið rými. Staðsetningin á Seltjarnarnesi er eftirsótt, róleg og fjölskylduvæn, með stuttri leið í alla helstu þjónustu.

Neðri hæð
Aðalhæð eignarinnar þar sem finna má björt og opin alrými, eitt svefnherbergi við anddyrið og sjónvarpsherbergi sem hægt er að breyta í svefnherbergi. Garðskáli og bílskúr.
Anddyri: Flísar á gólfi og innbyggðir skápar og hirslur.
Eldhús: Nútímaleg innrétting í ljósum við og hvítum tónum með góðu vinnuplássi og innbyggðum tækjum. Morgunverðaraðstaða við enda eldhús. Ljóst parket á gólfi og opið flæði inn í borðstofu.
Borðstofa: Rúmgóð og björt með ljósu parketi á gólfi, mikilli lofthæð og stórum gluggum sem hleypa inn mikilli dagsbirtu. Tengist eldhúsi og stofum í opnu rými.
Tvær samliggjandi stofur; aðalstofa og lægri sjónvarpsstofa með arni. Bjartar og rúmgóðar með ljósu parketi og stórum gluggum.
Svefnherbergi I: Eitt svefnherbergi á neðri hæð með parketi á gólfi og góðum hirslum.
Sjónvarpshol/skrifstofa/auka herbergi: er milli borðstofu og garðskála.
Gestasalerni/Baðherbergi: Nútímalegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, sturtu og stílhreinni innréttingu úr ljósum við.
Þvottahús: Vel útbúið þvottahús með hvítri innréttingu, vinnuborði og rými fyrir þvottavél og þurrkara, auk góðrar geymslu. Flísar á gólfi.
Garðskáli: Endurnýjaður árið 2007, bjartur og notalegur, með flísum á gólfi og útgengi á timburpall.

Bílskúr: Rúmgóður tvöfaldur bílskúr með nýlegum bílskúrshurðum frá Héðni (fyrir um 10 árum).

Efri hæð
Svefnálma eignarinnar með 3-4 svefnherbergjum (stóra var 2 herbergi), baðherbergi og opnu sjónvarpsholi.
Opið hol/Sjónvarpshol: Bjart og rúmgott rými með mikilli lofthæð og ljósu parketi á gólfi, hentar vel sem sjónvarpshol eða leshorn.
Svalir - frá holinu er gengi út á 70 m² þaksvalir sem bjóða upp á marga nýtingarmöguleika.
Hjónaherbergi (herbergi II): Stórt og bjart hjónaherbergi með ljósu parketi á gólfi og rennihurðaskápum.
Svefnherbergi III og IV. bæði með ljósu parketi á gólfi og góðum hirslum. Hentug sem barnaherbergi eða skrifstofur.
Baðherbergi II: Glæsilegt, nútímalegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórum sturtuklefa, upphengdu salerni og stílhreinni innréttingu úr ljósum við.

Garður og umhverfi
Verönd/Pallur: Sér timburpallur með skjólveggjum, sem býður upp á notalega útiveru. Tengist beint út úr garðskála og frá borðstofu
Aðkoma og bílastæði: Góð aðkoma að húsinu með nægum bílastæðum og rúmgóðum tvöföldumbílskúr.

Staðsetning: Eignin er staðsett á rólegri og eftirsóttri Selbraut á Seltjarnarnesi, vel þekkt fyrir fjölskylduvænt umhverfi og nálægð við skóla, íþróttasvæði og útivistarmöguleika.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 /

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/896e4846-10b9-47b5-b4b2-e2fc2e254ed6
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
