Fasteignasalan Hvammur 466 1600 Vandað og vel innréttað geymsluhúsnæði að Njarðarnesi 6, eignarhluti 113. Stærð 79,8 m² auk millilofts. Eignin er skráð sem geymslurými og er 79,8 m² að grunnfleti en auk þess er óskráð milliloft um 25 m².
Flísar eru á gólfi og góður timburstigi er upp á milliloftið. Þar er ljóst plastparket á gólfi, spónlögð kaffistofuinnrétting og snyrting með samskonar innréttingu. Innkeyrsluhurð er rafdrifin, um 3,7 metrar á hæð og um 3,6 metrar á breidd. Við hliðina á innkeyrsluhurð er gönguhurð.
Eignin er um 6,6 metrar á breidd og um 12 metrar á dýpt. Hæð upp í milliloftið er um 2,4 metrar. Annað
* Hiti er í gólfi.
* Góð aðkoma, malbikað bílaplan.
* 3ja fasa tengill.
* Eignin er í einkasölu. Frekari upplýsingar veitir Björn Davíðsson s. 466 1600 / 862 0440 eða . Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Sýna meira
Lykiltölur
Gólfflatarmál79.8 m²
SveitarfélagAkureyri
Auglýst á
MBL Fasteignir
37.900.000 kr.
Verðsaga
Kort
Staðsetning
Áætluð staðsetning byggð á svæði auglýsingarinnar.