listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Kópavogur

Íbúð – Kópavogur
Íbúð – Kópavogur - Aðalmynd

3 herbergja til sölu, 99 m²

Kópavogur

2 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

97.500.000 kr.

981.873 kr./m²

Skráð 4. okt. 2026

Um þessa auglýsingu

Nýtt í sölu! Rjúpnasalir 10 Kópavogi - Þakíbúð með 112 fermetra þaksvölum og stæði í bílakjallara Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir fallega þakíbúð í vönduðu og fallegu húsi við Rjúpnasali 10 í Kópavogi. Um er að ræða 99,3 fermetra íbúð í lyftuhúsi á 10. hæð (efstu) með 112 fermetra þaksvölum og stórglæsilegu og óhindruðu útsýni til allra átta. Sérbílastæði í bílakjallara og góð 7,6 fermetra geymsla í kjallara. Íbúðin er með aukinni lofthæð og stórum gluggum til suðvesturs. Útgengi úr stofu og hjónaherbergi á þaksvalir með útsýni út á sundin, að Bláfjöllum, Keili, yfir Reykjanesið, Snæfellsjökli, Akrafjalli, Skarðsheiði, Esjunni, Móskarðshnjúkum og víðar. Tengingar fyrir heitum potti til staðar á svölum. Íbúðin skiptist í rúmgóða stofu með stórum gluggum, fallegu eldhúsi sem er opið að hluta við stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og forstofu. Sameign hússins er afar snyrtileg með flísum á ytra anddyri og teppum á sameign. Tvær lyftur eru í húsinu sem ganga niður í bílakjallara/geymsluganga. Rafmagnshurðaropnun er á aðalhurðum í sameign. Lóðin er snyrtileg og frágengin með hellulagðri stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og sameiginlegum malbikuðum stæðum. Nánari lýsing: Forstofa: Með flísum á gólfi og góðum skápum. Stofa: Er rúmgóð, með aukinni lofthæð og gegnheilu parketi á gólfi. Stórir gluggar til suðvesturs og útgengi á stórar þaksvalir. Afar fallegt útsýni er frá stofu og svölum. Þaksvalir: Eru 112 fermetrar, hellulagðar og með útsýni til allra átta. Tengi fyrir heitum potti til staðar. Glæsilegt og óhindrað útsýni líkt og fyrr greinir. Eldhús: Með eikar eldhúsinnréttingu og gegnheilu parketi á gólfi. Innb. kæliskápur og tengi fyrir uppþvottavél. AEG stál bakaraofn, keramik helluborð og stál háfur. Gluggi til vesturs Hjónahebergi: Með gegnheilu parketi á gólfi, góðum skápum á heilan vegg og aukinni lofthæð. Gluggar til norðurs og útgengi á þaksvalir. Svefnherbergi: Með gegnheilu parketi á gólfi, skápum, aukinni lofthæð og glugga til vesturs. Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Sturta, innrétting við vask, upphengt salerni og handklæðaofn. Gluggi til vesturs og útloftun. Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og glugga til norðurs. Vinnuborð, vaskur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Aukin lofthæð að hluta. Sérmerkt bílastæði: Er vel staðsett í bílakjallara. Komið grunnkerfi fyrir rafhleðslustöðvum. Sérgeymsla: Í kjallara er 7,7 fermetrar að stærð. Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett í kjallara. Málað gólf og útgengi á lóð. Nánari upplýsingar hjá Heimi Hallgrímssyni lögg. fasteignasala á netfanginu

Hvað er innifalið

Svalir
Lyfta
Flatarmál99.3 m²
Herbergi3
Svefnherbergi2
Baðherbergi1

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

97.500.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

418.721 kr./mán

Útborgun20 % · 19.500.000 kr.
19.500.000 kr.78.000.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla150.739.512 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.