Mikið endurnýjað raðhús á tveimur hæðum með fallegu útsýni í fjölskylduvænu og eftirsóttu hverfi.
Neðri hæð hússins hefur nýlega verið tekin í gegn og þar eru tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús og útgengt á pall frá hjónaherbergi.
Efri hæð var endurnýjuð árið 2022 og þar er björt og opin stofa ásamt eldhúsi og inngangi.
Sér bílastæði fylgir eigninni og sameiginlegur garður stendur íbúum til boða.
Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla auk fjölbreyttra göngu- og útivistarsvæða í næsta nágrenni.