# radpar, Vorbraut 37, Garðabær

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/9adeb4da-9ab0-4e2b-a5b4-2cfdc8249f48

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** removed
- **Transaction:** sale
- **Category:** house
- **Asking price:** 215,000,000 ISK
- **Location:** Garðabær, IS
- **Floor area:** 252.30000076293945 m²
- **Bedrooms:** 4
- **Published:** 2026-08-19T17:13:11.077Z
- **Last updated:** 2026-09-20T07:49:00.915Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegt raðhús á einstökum útsýnisstað í Garðabæ. Um er að ræða eign sem er skráð skv fmr 252,3fm og þar af er bílskúr 22,7fm. Húsið er 6. herbergja raðhús á tveimur hæðum með fjórum svefnherbergjum og tveimur stofum. Húsið er mjög vandað, staðsteypt, einangrað að utan og með vandaðri álklæðningu. Loftskiptikerfi er í húsinu, mikil lofthæð, gólfhitastýring, hjónasvíta og gólfsíður horngluggi án pósta í miðju er í stofunni sem gefur eigninni einstakan svip og glæsilegt útsýni. Tveir afhendingarmöguleikar eru í boði, annars vegar fullbúið hús að innan kr. 245.000.000,- Hins vegar tilbúið til innréttingar, lóð frágengin að framan, hellulagt með hitalögn og grófjöfnuð lóð að aftan, Verð tilbúið til innréttingar kr. 215.000.000,- Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir, fasteignasali í GSM 820-2222, netfang og/eða Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali í GSM: 898-6106, netfang 

Eignin skiptist eftirfarandi: Komið inn á efri hæð. Gott anddyri með fataskáp, forstofu svefnherbergi, gestasalerni, búr og eldhús ásamt borðstofu og stofu, með útgengi út á svalir.ð Glæsilegt útsýni yfir golfvöll GKG yfir til Vífilsstaðavatns, til suð suð-vesturs. Stigi niður á neðri hæð. Neðri hæð: Gangur með útgengi út í garð. Sjónvarpshol, baðherbergi, Þvottaherbergi, 2. svefnherbergi auk hjónasvítu með baðherbergi og fataherbergi, og útgengi út í garð / verönd.

Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir, fasteignasali í GSM 820-2222, netfang og/eða Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali í GSM: 898-6106, netfang 

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 3.800.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/9adeb4da-9ab0-4e2b-a5b4-2cfdc8249f48
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
