listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Garðabær, Höfuðborgarsvæðið

Íbúð – Garðabær, Höfuðborgarsvæðið
Íbúð – Garðabær, Höfuðborgarsvæðið - Aðalmynd

4 herbergja til sölu, 143 m²

Garðabær, Höfuðborgarsvæðið

2 Svefnherbergi·2 Baðherbergi

154.900.000 kr.

1.082.460 kr./m²

Skráð 17. okt. 2026

Um þessa auglýsingu

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg íbúð með frábæru útsýni í vönduðu lyftuhúsi á besta stað í hjarta Garðabæjar. Um er að ræða 4 herbergja íbúð sem er skráð skv fmr 143,1 fm og þar af er sér geymsla í sameign sem er skráð 8fm. Tvennar yfirbyggðar svalir og stæði í lokaðri bílageymslu fylgja eigninni. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, sjónvarpsherbergi, tvö baðherbergi bæði með sturtu, þvottaherbergi og tvö svefnherbergi. Allar innréttingar eru samræmdar og gólfefni eru flísar og harðparket. Húsið er staðsett í miðbæ Garðabæjar þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri svo sem Matvöruverslun, heilsugæsla, veitingastaðir, apotek, hágreiðslustofa, verslanir, bókasafn og fl. Einnig er bæði golfvöllur, sundlaug, grunn og leikskóli í innan við 5 mínútna keyrslu. Frábært útsýni er frá eigninni m.a út á sjó, yfir Bessastaði og Snæfellsjökul svo eitthvað sé nefnt. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða Nánari lýsing: Forstofa: komið er inn í rúmgóða forstofu með miklum fataskápum sem ná uppí loft, harðparket er á gólfi. Stofa: Stofan er björt og opin með gluggum frá lofti og niður að gólfi. Útsýnið er einstakt út á sjó, að Snæfellsjökli og yfir Bessastaði. Borðstofa: samliggjandi stofu er rúmgóð borðstofa sem rúmar vel stórt borð. Sjónvarpsherbergi: Við hlið stofu er sjónvarpsherbergi með glugga sem mögulegt væri að loka og nota sem herbergi. Eldhús: eldhúsið er vel útbúið með fallegri innréttingu sem nær uppí loft og er með granít á borði. Stór eyja sem hægt er að sitja við. Stækkað span helluborð með háf yfir, ofninn er í vinnuhæð og tengi er fyrir uppþvottavél. Frá eldhúsi er gengið út á yfirbyggðar grill svalir. Baðherbergi: aðalbaðherbergi er með fallegri innréttingu með granít á borði, flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, góðri sturtu og handklæðaofni. Svefnherbergi: herbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum. Hjónasvítan er mjög rúmgóð. Stórir fataskápar og innangengt baðherbergi sem er vel útbúið með innréttingu, góðri sturtu og með opnanlegum glugga. Þvottaherbergi: innan íbúðar er þvottaherbergi með flísum á gólfi, innréttingu þar sem vélarnar eru í vinnuhæð, vaski og hilum fyrir ofan vask. Sameign: í sameign er sérgeymsla sem fylgir eigninni og stæði í lokaðri bílageymslu sem er upphituð og búið að rykbinda og mála gólfin. Byggingaraðili: ÞG Verk ehf. er lóðarhafi og byggingaraðili hússins. Þ.G. Verktakar hafa áralanga reynslu að framkvæmdum fyrir opinbera aðila, stórfyrirtæki og einstaklinga ásamt því að byggja atvinnu- og íbúðarhúsnæði á eigin vegum. Niðurlag: Þetta er einstaklega vel skipulögð og falleg íbúð með frábæru útsýni í hjarta Garðabæjar þar sem öll þjónusta er í göngufæri. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða

Hvað er innifalið

Svalir
Lyfta
Bílskúr
Flatarmál143.1 m²
Herbergi4
Svefnherbergi2
Baðherbergi2

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

154.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

665.229 kr./mán

Útborgun20 % · 30.980.000 kr.
30.980.000 kr.123.920.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla239.482.568 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar
  • Pricing

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.