Hús – Mosfellsbær

Hús til sölu, 234 m²

Mosfellsbær

5 Svefnherbergi3 Baðherbergi

159.000.000 kr.

678.038 kr./m²

Skráð 12. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Eignamiðlun kynnir: Úugata 86, 234.0 fm 6-7 herb. hús á tveimur hæðum á mjög góðum útsýnisstað í Helgafellslandinu í Mosfellsbæ. Húsið er samtals 234 fm að stærð með bílskúr og mögulegri "stúdíóíbúð" á neðri hæð. Húsið er í byggingu og gert ráð fyrir að afhenda það í október 2026 og afhendist húsið fullfrágengið að utan með að mestu frágenginni lóð en á byggingarstigi 3 að innan þ.e. tilbúnu til innréttingar. Sjá nánar í skilalýsingu. Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 252-4867, nánar tiltekið eign merkt 01-01, birt heildarstærð er um 234.0 fm. Svalir eru út frá efri hæð og eru ca 51 fm að stærð. Eignin skiptist í: NEÐRI HÆÐ: Stúdíóíbúð, baðherbergi, tvö svefnherbergi, og fjölskyldurými/herbergi. EFRI HÆÐ: Anddyri, innangengt í bílskúr, herbergi/skrifstofa, snyrting með sturtu, alrými sem er eldhús og stór stofa, gengið út á stórar svalir. Smelltu hér til að sækja söluyfirlit. Nánari lýsing eignarinnar: EFRI HÆÐ/INNGANGSHÆÐ: Rúmgott anddyri , herbergi /skrifstofa. Snyrting með sturtuaðstöðu. Eldhús, opið að hluta yfir í rúmgóða stofa , gengið út á stórar svalir í L. Innangengt úr forstofu í góðan bílskúr. Steyptur stigi milli hæða. NEÐRI HÆÐ: Stúdíóíbúð með sérinngangi en innangengt í aðaleign. Er eldhús, baðherbergi og alrými. Á neðri hæð eru einnig: Rúmgott hjónaherbergi, fjölskylduherbergi og tvö önnur herbergi ásamt baðherbergi með þvottaaðstöðu. Húsið verður afhent í september 2026. SKILALÝSING: HÚSIÐ AÐ UTAN OG LÓÐ: Húsið afhendist fullfrágengið að utan, staðsteypt hús. Húsið er almennt klætt með standandi Bemo klæðningu ral 9005 á álundirkerfi frá Byko.Timburklæðning er við inngang og frá svölum. Gluggar Í húsinu eru álklæddir timburgluggar svartir að lit. Lóð er frágengin að mestu. Á lóð eru 3 steypt bílastæði og gönguleið að húsi, með snjóbræðslu. Sportunnuskýli fyrir 3 sorptunnur eru við bílaplan. Svalir ,handrið úr tvöföldu 8mm samlímdu hertu gleri. Göngustigi niður í garð á 1 hæð, komið á steypta munstursteypu sem er afmörkuð á grunnmynd 1 hæðar. Heitur og kaldur pottur með útisturtu. Snjóbræðsla í steypu ,lóð. HÚSIÐ AÐ INNAN: Gólf verða flotuð og rykbundin. Veggir: steyptir veggir eru sparslaðir og grunnaðir í hvítum lit. Léttir innveggir verða hlaðnir úr gipssteini, spaslaðir og grunnaðir í hvítum lit. Gert ráð fyrir að veggir í baðherbegjum séu ófrágengnir að hluta(nema um annað verði samið). Loft spaslað og grunnað í hvítum lit. Rafkerfi : Inntak og rafmagnstafla uppsett í bílskúr. Gert er ráð fyrir hleðslustöð fyrir rafbíl. Dregið verður í Lagnir. Útiljós eru uppsett á húsi. Lagnir og hitakerfi: Inntak hita og neysluvatns er frágengið, en án hitastýringar. Gólfhitakerfi er í húsinu frágengið með hitastýringu. Neysluvatn lagt í gólf og veggi skv. teikningum. Lagnaleið fyrir útisturtu, heitan kaldan pott er út á verönd. Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólfhitakerfi. Hámarkshiti á heitu vatni eru 60°C. Stofninntak neysluvatnslagna er tengt og frágengið. Neysluvatnskerfi er með forhitara. Loftskiptikerfi verður í húsinu samkvæmt teikingu af SYSTEMAIR gerð uppsett og fullfrágengið af Blikksmiðnum HF Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3 % af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt. Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090 *** Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum. Heimasíða Eignamiðlunar Eignamiðlun á Facebook

Hvað er innifalið

Svalir
Garður
Bílskúr

Staðsetning

Kort ekki tiltækt

Þessi auglýsing inniheldur ekki nákvæm hnit.