listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Reykjavík, Lækir, Laugardalur

Íbúð – Reykjavík, Lækir, Laugardalur
Íbúð – Reykjavík, Lækir, Laugardalur - Aðalmynd
Ekki lengur í boði

Þessi auglýsing er ekki lengur virk. Við geymum hana til viðmiðunar, en upplýsingarnar gætu verið úreltar.

2 herbergja til sölu, 59 m²

Reykjavík, Lækir, Laugardalur

1 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

56.500.000 kr.

957.627 kr./m²

Skráð 28. ágú. 2026

Um þessa auglýsingu

Valborg fasteignasala kynnir mjög bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja útsýnisíbúð að Kleppsvegi 32/gengið inn frá Brekkulæk, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Íbúðin er endaíbúð á þriðju og efstu hæð með útsýni í suð-vestur, hluti 040302 ásamt geymslu í kjallara merkt 0004. Góð bílastæði við húsið. Hleðslustöðvar eru á lóð bak við blokkina sem íbúar hafa aðgang að. Íbúðin skiptist í stórt alrými, anddyri, stofu/borðstofu og eldhús með útgengi á vestur svalir, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Sameign er snyrtileg, teppi á stigagangi hafa nýlega verið endurnýjuð, stigagangur nýmálaður, nýlegt dyrasímakerfi í húsinu. Nánari lýsing: Anddyri: Innbyggðir ljósir skápar. Harðparket á gólfi. Eldhús: Ljós innrétting með eyju og tréplötu á borðum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Hvítar flísar yfir borði. Þvottavél tengd í eldhúsi. Harðparkarket á gólfi. Stofa/borðstofa: Bjart opið rými. Harðparket á gólfi. Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með skáp. Harðparket á gólfi. Baðherbergi: Flísalagt með ljósum flísum. Hvít innrétting, baðkar með sturtu. Geymsla: 4 m² geymsla í sameign á jarðhæð. Sameign: Þvottahús, hjóla- og vagnageymsla. Hluti húsgagna geta fylgt með eftir nánara samkomulagi. Mikil breyting hefur verið gerð á skipulagi íbúðarinnar. Opnað var á milli stofu/borðstofu, eldhús og svefnherbergi var gert í suðurhluta íbúðar í stað vesturs. Eignin Kleppsvegur 32 er skráð sem hér segir samkvæmt HMS: Eign 201-6184, íbúð 55 m² og geymsla 4 m², birt stærð 59 m². Frábær staðsetning í góðu og vinsælu hverfi við Laugardalinn, þar sem stutt er í alla þjónustu svo sem leikskóla, grunnskóla, Laugardalslaug, World Class Laugar, kaffihús og verslunarkjarna. Góðar göngu- og hjólaleiðir um Laugardalinn o.fl. Nánari upplýsingar veitir: Þyrí Guðjónsdóttir, viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur . Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Flatarmál59 m²
Herbergi2
Svefnherbergi1
Baðherbergi1

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

56.500.000 kr.

Fasteignaleitin

56.500.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

242.643 kr./mán

Útborgun20 % · 11.300.000 kr.
11.300.000 kr.45.200.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla87.351.614 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.