Eignin er staðsett á rólegum stað í miðbæ Reykjavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og skóla og lífið í bænum. Rúmgott eldhús með miklu skápaplássi. Tvö mjög stór herbergi (15 og 17 fm) með skápum og svalir úr öðru þeirra. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara (1 hæð niður). Aðeins er gengið upp tvö þrep að íbúðinni frá götu. Ekki er gjaldskylda í stæði fyrir framan húsið og íbúakort eru fáanleg. Gæludýr eru leyfð í húsinu en reykingar eru bannaðar. Aðeins reglusamir aðilar koma til greina. Eignin getur verið laus 1. September , nánari upplýsingar um það í skilaboðum. Leigutími er samningsatriði, frá 3 mánuðum.
Íbúðarflatarmál86 m²
Svefnherbergi3
Herbergi3
Laust frá1.9.2026
Staðsetning
Kortið hleðst bráðum
Hverfisgögn eftir beiðni
Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.