Íbúð – Hafnarfjörður
Ekki lengur í boði

Þessi auglýsing er ekki lengur virk. Við geymum hana til viðmiðunar, en upplýsingarnar gætu verið úreltar.

3 herbergja til sölu, 113 m²

Hafnarfjörður

2 Svefnherbergi1 Baðherbergi

90.600.000 kr.

798.942 kr./m²

Skráð 11. maí 2026

Um þessa auglýsingu

Nýtt á skrá! *** Möguleiki á 20% aðstoð fyrir kaupendur með UTS20. Sjóðnum ***   UTS20. Sjóður hjálpar þér að komast inn á fasteignamarkaðinn með því að fjárfesta fyrir allt að 20% af kaupverði eignar. Þú þarft einungis að eiga 10% í eigið fé til þess að geta keypt þér eign og að fá 70% lán hjá lánastofnun. Nánari upplýsingar um UTS20. Sjóðinn hér. Lind Fasteignasala og Helga Pálsdóttir kynna nýjar og glæsilegar 2–4 herbergja íbúðir í vönduðu og fallegu fjölbýli við Baughamar 3, 221 Hafnarfirði. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum, innbyggðum ísskáp, frysti og uppþvottavél. Möguleiki er á að kaupa sérmerkt bílastæði í bílageymslu. Byggingaraðili: Skuggi 6 ehf. Aðalhönnuður hússins: Teikna-teiknistofa arkitekta ehf. Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.baughamar3.is  Íbúð 303: 113,4 fm, þriggja herbergja íbúð á 3. hæð. Nánari lýsing: Anddyri: Parket á gólfi, fataskápur. Eldhús: Parket á gólfi, gott skápa- og borðpláss, innréttingin er frá þýska framleiðandanum Nobilia, með steinplötu á borðum. Eldhúsinnrétting er fullbúin með blöndunartækjum og eldhústækjum þ.e. helluborði, viftu í innréttingu eða eyjuháfi yfir helluborði þar sem það á við, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél og ofni. Alrými: Parket á gólfi, útgengt út á svalir. Hjónaherbergi: 15,8 fm, parket á gólfi, fataskápur. Herbergi: 12,1 fm, parket á gólfi, fataskápur. Baðherbergi: Baðherbergisgólf og sturturými eru flísalögð. Baðinnrétting er með neðri skáp með steinplötu við handlaugar, hvítri handlaug og efri skápum með spegli á hurðum og ljósi. Salerni er vegghengt með innbyggðum vatnskassa. Blöndunartæki á baði eru hitastýrð blöndunartæki og sturtustöng með utanáliggjandi blöndunartækjum. Þvottahús: Sér þvottahús, innrétting undir þvottavél og þurrkara. Svalir: 8,7 fm. Geymsla: 13,9 fm í sameign. Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign. Frekari upplýsingar í skilalýsingu hjá fasteignasala. Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamati þegar því hefur verið úthlutað eigninni. Nánari upplýsingar veita: Helga Pálsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8222123, tölvupóstur . Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8482666, tölvupóstur .

Hvað er innifalið

Lyfta
Bílskúr

Staðsetning

Kort ekki tiltækt

Þessi auglýsing inniheldur ekki nákvæm hnit.