# fjolb, Þórunnarstræti 106C, Akureyri

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/bb33babe-9b6b-4259-b582-cd5e5d91d2fc

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** removed
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 84,500,000 ISK
- **Location:** Akureyri, IS
- **Floor area:** 167.1 m²
- **Bedrooms:** 4
- **Published:** 2026-08-18T10:47:38.704Z
- **Last updated:** 2026-09-20T01:49:01.718Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Fasteignamarkaðurinn ehf., s. 570-4500 kynnir til sölu einstaklega falleg efri sérhæð ásamt bílskúr við Þórunnarstræti 106C á Akureyri. Samkvæmt HMS er eignin 167 fermetrar að stærð og skiptist þannig að íbúð er 142,1 fermetrar og bílskúr 25,0 fermetrar. Þrjár íbúðir eru til sölu í húsinu.

Eignin er sérlega falleg efri sérhæð í góðu steinsteyptu fjórbýlishúsi miðsvæðis á Akureyri. Örstutt í sundlaug Akureyrar eða niður gilið og í miðbæinn.
Gluggar og gler er nýlega endurnýjað. Þak nýlega endurnýjað. Að sögn fyrri eigenda var mokað frá húsinu og dren endurnýjað um 2000.

Nánari lýsing:
Stigagangur, er með nýju teppi
Forstofa, með parketi
Hol, með parketi á gólfi. Nýlega niðurtekið loft með fallegri led lýsingu
Stofurnar, eru tvær, voru samliggjandi og auðvelt að breyta aftur. Eikarparket er á gólfi, úr annarri stofunni er útgengi út á svalir til vesturs.
Eldhús, var endurnýjað árið 2016. Flísar á gólfi. Góð eikarinnrétting frá Tak innréttingum, flísar milli efri og neðri skápa. Ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél.
Svefnherbergin, eru þrjú og eru þau öll með parketi á gólfi. Fataskápur í hjónaherberginu.
Baðherbergið, var endurnýjað árið 2016, Flísar í gólf og veggi. Baðkar, wc og handklæðaofn. Innrétting við vask og að auki skápur og skúffur. Gluggi er á baði.
Þvottahús, er innan íbúðar.
Í bakgarði, er stór pallur með garðhúsi.

Húsið hefur verið endurnýjað að miklu leyti á síðustu árum skv. upplýsingum frá seljanda eignarinnar:
Nýjar inntakslagnir fyrir heitt og kalt vatn.
Nýr brunnur í lóð og frárennslislagnir í lóð eru nýjar.
Nýr ljósleiðari.
Inntaksrör hafa verið lögð í bílskúr.
Húsið var málað að utan og innan árið 2024.
Þakrennur og niðurfallsrör yfirfarin og endurnýjuð árið 2024.
Þakjárn var endurnýjað fyrir nokkrum árum og er í lagi.
Raflagnir og vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar að hluta.
Ný rafmagnstafla fyrir allar íbúðir + fyrir allt húsið (í sameign).
Ný inntaksgrind fyrir vatn.
Ný hitalögn í bílaplani.
Búið er að jarðvegsskipta allt í kringum húsið og drena.
Nýsteypt bílaplan og nýsteyptar gangstéttar.
Nýjar svalir á efri hæð + ný handrið á efri og neðri svölum.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu 

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/bb33babe-9b6b-4259-b582-cd5e5d91d2fc
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
