# fjolb, Laugavegur 170 íb 605 - Heklureitur, Reykjavík

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/c57aba34-e7a7-4b2d-8ff9-df5be02d9cdd

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** removed
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 259,000,000 ISK
- **Location:** Reykjavík, IS
- **Floor area:** 191.7 m²
- **Bedrooms:** 3
- **Published:** 2026-10-13T08:34:00.688Z
- **Last updated:** 2026-11-14T19:49:07.004Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Eignamiðlun kynnir:
Íbúð á sjöttu hæð með tvennar svalir til norðurs og einar til suðurs. Glæsilegt útsýni út á Faxaflóa og til Esjunnar. Henni fylgja tvö einkastæði í bílakjallara ásamt vel rúmri geymslu.

NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Gunnar Bergmann Jónsson, Löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða 

Rúm og falleg fjögurra herbergja íbúð með möguleika á að bæta við herbergi. Sér þvottahús og einnig sér búr fyrir aftan eldhúsið með vaski og plássi sem má innrétta t.d fyrir stærri vínskáp og auka ísskáp. Hjónasvítan er með stóru fataherbergi og baðherbergi með tvöfaldri sturtu og vöskum. Einstök útsýnisíbúð og eign búin frábærri hönnun og tækjum.
Birt stærð: 191,7 m2

Þar af geymsla: 17,6 m2

Herbergi 4-5

Einkastæði: B16, B17

Svalir: Þrennar

**Sækja söluyfirlit**

**Skoða heimasíðu verkefnis**

Hönnun:
Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum og einnig verða vélræn loftskipti í þeim sem tryggir aukin loftgæði. Hafstudio og Studio Homestead komu að hönnun innréttingannna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra og munu kaupendur hafa tækfæri á að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergjum. Íbúðirnar hafa einstakt útsýni til fjallahringsins og yfir borgina.

Í eldhúsinu verður eyjan, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini sem er sérframleiddur á Ítalíu frá Santamargherita. Íbúðirnar eru búnar stórglæsilegum og vönduðum tækjum frá Siemens. Þau koma úr studioLine línunni sem að býður úrval glæsilegra tækja sem gera matreiðsluna sérlega þægilega og ánægjuríka. Úrvalstæki þar sem gott jafnvægi ríkir á milli nýjunga og stílhreinnar hönnunar sem er óháð tíð og tíma. Á baðherbergjum verða blöndunartækin innbyggð með gun metal lit. Quartz borðplata á baðinnréttingu. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða bað eru valin með tilliti til gæða og endingar.

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.

Afhending miðast við haust 2026

Nánari upplýsingar veita fasteignasalar Eignamiðlunar:
Kjartan Hallgeirsson 824-9093 
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson 864-5464 
Kári Sighvatsson 899-8815 
Gunnar Bergmann Jónsson 839-1600 
Brynjar Þ. Sumarliðason 896-1168 
Rögnvaldur Örn Jónsson 660-3452 
Unnar Kjartansson 867-0968 
Lilja Guðmundsdóttir 649-3868 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/c57aba34-e7a7-4b2d-8ff9-df5be02d9cdd
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
