Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu: Rúmgóða og fallega 2ja-3ja herbergja endaíbúð á jarðhæð með sér inngang og tveimur afgirtum veröndum. Gott aðgengi. Eignin telur: Opið og bjart alrými sem telur stofu, borðstofu og eldhús, hjónaherbergi, auka herbergi / geymsla með loftræstingu en gluggalaust, baðherbergi, anddyri, sér þvottahús og sameiginleg góð geymsla.
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa mynda saman fallegt rými, parket á gólfi og útgengt á verönd framan við húsið.
Eldhúsið er opið við stofuna, þar er fín innrétting með veggfastri eyju, parket á gólfi og útgengt á verönd (frábær grillaðstaða)
Hjónaherbergi rúmgott með stórum fataskápum, parket á gólfi.
Auka herbergi, parket á gólfi, loftræst rými en án glugga. Nýtist sem gestaherbergi en er skráð geymsla.
Baðherbergi er flísalagt með snyrtilegri innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu, gluggi er á rýminu.
Þvottahús er sér innan íbúðar með flísum á gólfi.
Sameign er snyrtileg, þar er stór sameiginleg geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Bílastæði er merkt framan við húsið (ekki skilgreint í eignaskiptasamn).
Hverfið er eftirsótt fjölskylduhverfi, göngufæri í skóla, grunnskóla, sund og íþróttaaðstöðu að Ásvöllum.
Hleðslustöð til afnota fyrir eigendur á sameiginlegu bílaplani.
Þetta er björt og falleg eign með góðu aðgengi sem vert er að skoða. Eignin getur verið laus fljótlega.
Allar nánari upplýsingar veitir: Atli S. Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í síma 899-1178 eða með tölvupósti á [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Sýna meira
Hvað er innifalið
Svalir
Lykiltölur
Flatarmál84.4 m²
Herbergi2
Svefnherbergi1
Baðherbergi1
Auglýst á
MBL Fasteignir
69.800.000 kr.
Verðsaga
Estimate
Investment economics
Estimated return if you let this apartment
Kort
Staðsetning
Áætluð staðsetning byggð á svæði auglýsingarinnar.