Íbúð – Reykjavík

3 herbergja til sölu, 110 m²

Reykjavík

2 Svefnherbergi1 Baðherbergi

69.900.000 kr.

634.301 kr./m²

Skráð 15. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Borgir fasteignasala kynnir eignina Eyjabakki 6, 109 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-02, fastanúmer 204-7317 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Eyjabakki 6 er skráð sem 3-4ja herbergja íbúð. Birt stærð 110.2 fm. Eignin er staðsett í enda sem snýr í suð-vestur á 2.hæð með 24,8 fm bílskúr og 7,1 fm geymslu. Nánari upplýsingar veita: Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir, lgf, í síma 8200788, tölvupóstur . Bjarklind Þór, lgf, í síma 6905123,tölvupóstur . Rúmgóð endurýjuð íbúð í Breiðholti Hjónaherbergi með nýlegum tvöföldum skáp. Búið er að gera barnaherbergin tvö að einu stóru en auðvelt að breyta aftur. Eldhús/stofa í opnu björtu rými. Nýleg innrétting í eldhúsi með innfeldum vask, helluborði, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél,veggháf og kvartstein á borðum. Svalir snúa í suð-vestur. Fallegt útsýni yfir Elliðaárdalinn og í átt að Esju. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtubaðkar og með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla: í kjallara Bílskúr: Góður endabílskúr með opnalegum glugga á hliðinni, upphitaður með köldu vatni. Fyrir framan bílskúrinn er bílastæði. Sameiginleg vagna-og hjólageymsla er staðsett í sameign í kjallara hússins. Árið 2023 var skipt um gler og gluggalista eftir þörfum í húsinu og tréverk málað. Ný gler í stofugluggum norður. Árið 2022 brotinn niður veggur í eldhúsi og ný eldhúsinnrétting og tæki sett upp. Parket sett á alrými og opinn fataskápur á forstofugagni. Dregið nýtt rafmagn í alrými, eldhús og svalir skipt um tengla og rofa í öllum herbergjum. Árið 2019 var skipt um fataskáp og gólfefni í svegnherbergjunum. Árið 2015-2016 var skipt um alla ofna í íbúðinni fyrir utan einn inná baðherberginu. Árið 2014-2015 var þak yfirfarið og skipt um þakrennur. Skipt um gler í minna herbergi. Myndir sem sýna kozy stemmingu eru tölvuteiknaðar og eiga að gefa hugmyndir um útlit og nýtingu eignarinnar. Umhverfi: Bílastæðin eru staðsett fyrir framan blokkina en leiksvæðið með rólum og grasflöt er staðsett fyrir miðju hússins. Staðsettning eignarinnar er góð og er því stutt í sem dæmi Mjódd þar sem öll helsta þjónusta er. Stutt í strætó, stutt í gönguleiðir sem dæmi Elliðaárdalinn, stutt í skóla,leikskóla og Breiðholtslaug. Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 mvsk.

Hvað er innifalið

Svalir
Bílskúr

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.