listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Hús – Selfoss (dreifbýli)

Hús – Selfoss (dreifbýli)
Hús – Selfoss (dreifbýli) - Aðalmynd

Hús til sölu, 102 m²

Selfoss (dreifbýli)

3 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

49.900.000 kr.

489.216 kr./m²

Skráð 7. okt. 2026

Um þessa auglýsingu

Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna: *** AFAR FALLEGUR BÚSTAÐUR Á GRÓÐURSÆLU LANDI RÉTT FYRIR UTAN SELFOSS *** Fallegt 102m2 sumarhús í byggingu á 5.560m2 eignarlóð í landi Búrfells II. Um er að ræða 102m2 sumarhús í byggingu, samkvæmt skráningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, við Grensás 32 í landi Búrfells II. Húsið stendur á 5.560m2 eignarlóð með fallegu útsýni og góðri tengingu við náttúruna. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - Húsið er með ál/tré gluggum og klætt að utan með bandsöguðu timbri. Steypt plata er með hitalögnum og gert er ráð fyrir loft-vatn varmadælu til upphitunar. Þak er fullfrágengið og torflagt. Húsið afhendist jafnframt með sólpalli og frágenginni aðkomu og bílastæði. Að innan afhendist húsið einangrað og plastað og rafmagnsgrind komin. Möguleiki er á að semja um að fá húsið afhent lengra komið í framkvæmdum. Búið er að greiða fyrir kalt vatn og rafmagn og rotþró er frágengin. Nánari lýsing samkvæmt teikningum: Gert er ráð fyrir forstofu, tæknirými og geymslu. Þrjú góð svefnherbergi eru í húsinu og tvö baðherbergi, þar af annað inn af hjónaherbergi. Eldhús og stofa mynda bjart og rúmgott alrými með góðri lofthæð. Einnig er gert ráð fyrir skriðlofti/svefnlofti sem býður upp á aukið nýtanlegt rými. Lóðin er 5.000 fm eignarlóð og býður upp á fallegt útsýni og mikla möguleika til framtíðar. Árgjald til félags sumarhúsaeigenda á svæðinu er 25.000 kr. Staðsetningin er góð fyrir þá sem vilja njóta kyrrðar og náttúru en jafnframt vera í góðri nálægð við fjölbreytta afþreyingu og þjónustu. Stutt er til margra af þekktustu áfangastaða Suðurlands, svo sem Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Þá er stutt í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttasvæði og fjölbreyttar og fallegar gönguleiðir. Hér er um að ræða spennandi tækifæri til að eignast nýtt og glæsilegt sumarhús á stórri eignarlóð og hafa jafnframt áhrif á endanlegan frágang hússins. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: 1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.
Íbúðarflatarmál102 m²
Svefnherbergi3
Baðherbergi1
Herbergi4
Byggingarár0

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

49.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

214.299 kr./mán

Útborgun20 % · 9.980.000 kr.
9.980.000 kr.39.920.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla77.147.709 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.