listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Hús – Selfoss

Hús – Selfoss
Hús – Selfoss - Aðalmynd

Hús til sölu, 99 m²

Selfoss

3 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

68.900.000 kr.

693.857 kr./m²

Skráð 4. nóv. 2026

Um þessa auglýsingu

LÓB fasteignir kynna eignina Boðavík 18, 800 Selfoss. Boðavík 18 er 99.3 fm íbúð í raðhúsi, byggt árið 2023 úr timbri, klætt að utan með járni/áli. Að utan er eignin klædd með hvítri álklæðningu og svart bárujárn á þaki. Möl á bílaplani og steypt ruslaskýli fyrir þrjár tunnur. Í eigninni eru 3 svefnherbergi, eldhús og stofa í sameiginlegu rými, baðherbergi og þvottahús. Ljóst plastparket á gólfi í öllum herbergjum að utan votrýmum þar sem flísar eru á gólfi. Einnig flísar á vegg að hluta á baðherbergi. Stór brún eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Ljós eru upptekin í loftið í eigninni. Í eldhúsi er stór eyja sem hægt er að sitja við. Svefnherbergin eru rúmgóð með skápum. Góð innrétting í þvottahúsi með vask. Eignin er staðsett í Jórvíkurhverfi á Selfossi sem er nýtt hverfi í uppbyggingu. Eignin er tóm og laus við undirritun kaupsamnings. Nánari upplýsingar veitir Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, - 6956134 Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk. 5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati. Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali - s: 416 2220 - gsm: 894 3209

Hvað er innifalið

Svalir
Íbúðarflatarmál99.3 m²
Svefnherbergi3
Baðherbergi1
Herbergi4
Byggingarár2023

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

68.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

295.896 kr./mán

Útborgun20 % · 13.780.000 kr.
13.780.000 kr.55.120.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla106.522.588 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar
  • Pricing

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.