Íbúð – Reykjavík

2 herbergja til sölu, 66 m²

Reykjavík

1 Svefnherbergi1 Baðherbergi

59.900.000 kr.

914.504 kr./m²

Skráð 9. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Þórhallur Biering og Betri Stofan kynna : Sérlega fallega og bjarta tveggja herbergja íbúð með suður-svölum, á fyrstu hæð. Lyftuhús á vinsælum stað í Úlfarársdalnum (byggt 2021). Mjög gott útsýni til austurs og suðurs. Komið er inn í rúmgóða forstofu með forstofuskáp. Eldhúsið er með fallegri innréttingu, skápapláss er ágætt og vinnuaðstaða fín. Gott pláss er fyrir borðstofuborð á milli eldhúss og stofu. Baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja. Ágæt innrétting, upphengt salerni og sturta. Tengi er fyrir þvottavél á baðherberginu. Stofan er góð og björt , með útgengi út á góðar suð-austur svalir. Svefnherbergið er rúmgott með stórum fastaskaáp. Gólfefni eru parket og flísar. Í sameign er sér geymsla (12,4 fm). Næg bílastæði og hleðslustöðvar. Gott húsfélag og engar fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum þess. Falleg eign í nýlegu húsi á vinsælum og góðum stað.. Stutt í sklóla og íþróttir. Allar nánari upplýsingar gefur: Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður: 1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.