listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Hafnarfjörður

Íbúð – Hafnarfjörður
Íbúð – Hafnarfjörður - Aðalmynd
Ekki lengur í boði

Þessi auglýsing er ekki lengur virk. Við geymum hana til viðmiðunar, en upplýsingarnar gætu verið úreltar.

3 herbergja til sölu, 83 m²

Hafnarfjörður

2 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

69.000.000 kr.

832.328 kr./m²

Skráð 18. maí 2026

Um þessa auglýsingu

ÍBÚÐIN FELLUR UNDIR REGLUR HMS UM HLUTDEILDARLÁN Fasteignasalan TORG kynnir: Nýbygging við Áshamar 24-26, Hafnarfirði. Eignin er íbúð á annarri hæð og er þriggja herbergja og 82,9 fm, þar af 7,5 fm geymsla í sameign. Ísskápur og innbyggð uppþvottavél fylgir. Sameiginlegur inngangur og 7,3 fm svalir út frá stofu. Íbúðinni fylgir stæði (B141) í lokuðum bílakjallara. Stutt er í alla helstu þjónustu.  Afhending er við kaupsamning. Íbúðir skilast fullbúin samkvæmt byggingastigi 7, parket á gólfum nema í votrýmum, sem verða flísalögð. BÓKIÐ SKOÐUN – MATTHILDUR LGFS SÍMI 690 4966 - EMAIL . SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR. Nánari lýsing: Komið er inn í anddyri. Alrými með stofu og eldhúsi, innréttingar í eldhúsi eru frá HTH innréttingum eða sambærilegum, hvítar og ljós-ask litaðar. Spanhelluborð, gufugleypir/eyjuháfur, ísskápur og innbyggð uppþvottavél frá AEG eða sambærilegu. Vönduð blöndunartæki. Gengið er út á 7,3 fm svalir frá stofu. Hjónaherbergi og barnaherbergi með fataskápum. Baðherbergi er með hvítri innréttingu og efri speglaskáp, upphengdu salerni og sturtu. Þvottaaðstaða er á baðherbergi. Sér geymsla í sameign.  Sér stæði í bílageymslu, merkt B141 Nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir lögfræðingur og löggiltur fasteignasali í síma 690 4966 eða Nánar um hverfið (tekið af heimasíðu fyrir áshamar 12-26) Áshamar 12-26 í Hamranesi er kjarni sex nútímalegra fjölbýlishúsa með 154 íbúðum í hverfi þar sem þegar hefur byggð upp þjónustu fyrir íbúa. Vellirnir/Skarðshlíð skarta tveimur grunnskólum og fjórum leikskólum en einnig er gert ráð fyrir að það komi grunnskóli og tveir fjögurra deilda leikskólar auk hjúkrunar- og heilsugæslustöð í Hamranesið. Íbúðirnar eru tveggja til fjögurra herbergja. Breytt úrval fyrir allar gerðir fjölskyldna þar sem hugað er að öryggi í umferðinni með góðum göngustígum og gangnakerfi. Húsin eru nærri náttúruperlum sem eru vinsælar til útivistar. Kaupandi greiðir skipulagsgjald af eigninni sem nemur 0,3% af brunabótamati og leggst á eftir að endanlegt brunabótamat hefur fengist á eignina.  Forsendur söluyfirlits:  Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.    TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Hvað er innifalið

Svalir
Lyfta
Bílskúr
Flatarmál82.9 m²
Herbergi3
Svefnherbergi2
Baðherbergi1

Staðsetning

Kort ekki tiltækt

Þessi auglýsing inniheldur ekki nákvæm hnit.

Auglýst á

MBL Fasteignir

69.000.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

296.326 kr./mán

Útborgun20 % · 13.800.000 kr.
13.800.000 kr.55.200.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla106.677.193 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.