# fjolb, Tjarnabraut 4, Njarðvík

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/d0ef40d2-e4c4-43ed-89a2-8015b28023cd

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** active
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 59,900,000 ISK
- **Location:** Njarðvík, IS
- **Floor area:** 82.2 m²
- **Bedrooms:** 3
- **Published:** 2026-08-28T12:55:00.507Z
- **Last updated:** 2026-08-28T12:55:00.507Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

PRODOMO fasteignasala kynnir fallega fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð í lyftuhúsi að Tjarnabraut 4 í Innri Njarðvík.
Vel skipulögð íbúð með sérsmíðuðum innréttingum. Alrými íbúðarinnar er opið og bjart. Gólfhiti er í eigninni. Henni fylgir merkt stæði, búið er að leggja fyrir rafhleðslu auk þess sem tvær hleðslustöðvar eru á lóð.

Nánari lýsing:
Anddyri með parkeyti á gólfi og fataskáp.
Stofa og eldhús með parketi á gólfi, stílhrein innrétting í eldhúsi með innbyggðum ísskáp/uppþvottavél og góðri eyju. Frá stofu er útgengt á svalir.
Svefnherbergin þrjú eru með parketi á gólfum og fataskápar eru í þeim öllum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Falleg innrétting, upphengt salerni og sturta. Þar er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Eigninni fylgir geymsla sem staðsett er á fyrstu hæð. Hjólaskýli er á lóð.

Húsið er einangrað að utan og klætt með báruðu áli. Svalahurðir og gluggar úr álklæddu timbri. Innréttingar eru frá Nobilia, fataskápar í herbergjum frá GKS. Hnotu innréttingar í eldhúsi og baðherbergi, innihurðar og fataskápar eru hvítir. Vel skipulögð eign. Stétt við innganga er hellulögð og gönguleiðir með snjóbræðslukerfi.
Frábær staðsetning í nálægð við skóla og leikskóla ásamt verslun og þjónustu. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og örstutt er á Reykjanesbraut.

Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/d0ef40d2-e4c4-43ed-89a2-8015b28023cd
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
